Ókeypis vefnámskeið um gervigreind
Gervigreindaráskorunin Elemennt er opið vefnámskeið fyrir alla áhugasama í boði ríkisstjórnar Íslands. Námskeiðið er um grunnatriði gervigreindar og hluti af aðgerðaráætlun til að mæta fjórðu iðnbyltingunni.
Markmið verkefnisins eru:
- Að gera þekkingu á gervigreind aðgengilega fyrir alla svo fólk finni kraft og tækifæri í nýrri tækni, fremur en ógn
- Að valdefla íslensku þjóðina og auka samkeppnishæfni hennar
- Að styrkja starfsmöguleika og starfshæfni Íslendinga
Um er að ræða 30 klukkustunda netnámskeið í 6 hlutum sem einstaklingar geta tekið þegar þeim hentar, hvort sem er í tölvu eða síma, en það er hannað til að vera aðgengilegt flestum, óháð aldri, starfsreynslu eða öðru.
Námskeiðið og frekari upplýsingar má nálgast hér
Myndin með fréttinni er fengin hér