Nýr vefur um nám og störf
Nýlega opnaði Fræðslumiðstöð atvinnulífsins vef um nám og störf á íslenskum vinnumarkaði, naestaskref.is
Næsta skref auðveldar notendum að finna upplýsingar um:
- Störf á íslenskum vinnumarkaði
- Námsleiðir í boði
- Raunfærnimat og leiðir í raunfærnimati
- Náms- og starfsráðgjöf sem notandi getur nýtt sér til að átta þig betur á upplýsingunum og skipuleggja næstu skref.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) og Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf (SÆNS) unnu sameiginlega að þróun vefsins í samráði og samstarfi við ýmsa hagsmunaaðila, s.s. starfsgreinaráð, fagfélög og fræðsluaðila.
Vefurinn er hluti af IPA styrktu verkefni sem FA stýrði á árunum 2012-2014 sem bar heitið: Þróun raunfærnimats til að efla starfshæfni fullorðinna með litla formlega menntun. Að verkefninu komu m.a. ráðgefandi aðilar frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Fjármálaráðuneytið, Velferðarráðuneytið, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, BSRB – Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Samband íslenskra sveitarfélaga, KVASIR – félag símenntunarmiðstöðva, Félag íslenskra framhaldsskóla og Hagstofu Íslands.
Markmið vefsins er að veita einstaklingum upplýsingar og aðgengi að ráðgjöf um störf á íslenskum vinnumarkaði, námsframboð þeim tengdum og raunfærnimatsleiðir.