Ný regla vegna náms í fegrunarfræðum

Frá og með næstu áramótum tekur gildi ný regla vegna einstaklingsstyrkja sem tekur til  náms í fegrunarfræðum ýmisskonar sem ekki teljast til löggildra iðngreina samanber eftirfarandi;

Nám sem tekið er á Íslandi

Nám í hverskonar fegrunarfræðum sem tekið er hérlendis og telst ekki til löggildra iðngreina þarf að falla að skilgreiningu sjóðsins um starfsnám og vera tekið hjá skólum með starfsleyfi  til að falla undir starfsmenntastyrki.  Athugið að vörupakkar og annað námsefni sem innifalið er í námskeiðsgjaldi, er ekki styrkt.  Því er aðeins tekið við reikningum sem sýna sundurliðun á kostnaði.   

Sé námið tekið hjá skólum sem ekki er með starfsleyfi er aðeins hægt að sækja um lífsleiknistyrk. Styrkur vegna lífsleikni er kr. 30.000,- en þó aldrei meira en 90% af reikningi. 

Nám sem tekið er erlendis

Allt nám í fegrunarfræðum sem tekið er erlendis mun frá áramótum falla undir lífsleikni. Styrkur vegna lífsleikni er kr. 30.000,- en þó aldrei meira en 90% af reikningi. 

Skilgreiningar  á fegrunarfræðum

Hér er notast við orðið fegrunarfræði þar sem orðið snyrtifræði nær yfir löggilda iðngrein.  Þessi regla sem er hér rætt um nær því yfir allt annað nám sem telst til fegrunarfræða en hefur ekki hlotið löggildingu hér á landi, samanber eftirfarandi upptalningu:

  1. Förðun
  2. Naglalist, þ.m.t. ásetning gervinagla
  3. Augnaháraásetningar, augnaháralengingar
  4. Varanleg förðun á augabrúnir

*Athugið að listann er mögulega ekki tæmandi.

Skólar sem kenna fegrunarfræði þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði svo það nám sem þeir bjóða sé styrkt sem starfsnám

  • Hafa starfsleyfi og texta sem tiltekur það sýnilegan á vefsíðu og geta framvísað skírteini sé þess óskað.
  • Hafa alla reikninga sundurliðaða þar sem  skýrt kemur fram kostnaður vegna náms og varnings.
  • Uppfylla skilyrði sjóðsins um starfsnám, sjá hér
  • Veita nemanda diplómu / viðurkenningarskjal í lok náms.

Vegna styrkja til fyrirtækja

Reglan mun ennfremur ná til fyrirtækjastyrkja, þ.e. aðeins nám sem tekið er hérlendis hjá skólum með starfsleyfi  verður styrkt sem starfsmennt. 

Viltu vita meira?

Þeir rekstraraðilar sem hafa áhuga á því að fá frekari útskýringar er velkomið að snúa sér til skrifstofu Starfsafls. 

 

Um Starfsafl:

Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.

Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.

Myndin með fréttinni er fengin hér

 

Þessi frétt hefur verið uppfærð frá því að hún var fyrst sett hér inn.  Reglan og öll umgjörð er í vinnslu og breytingar taka mið af því.