Ný regla um stafræna fræðslupakka

Tekið hefur gildi regla um styrki vegna stafrænna fræðslupakka, það er pakka sem innihalda söfn starfstengdra námskeiða. Um er að ræða nýja reglu sem tekur við af eldri reglu og er hún eins hjá þremur stærstu sjóðunum; Starfsafli, Landsmennt og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks. 

Reglan er svohljóðandi fyrir þau fyrirtæki sem standa að Starfsafli:

Áskrift af stafrænum fræðslupökkum er styrkhæf um 90% af reikningi. Einungis er hægt að sækja um styrk vegna slíkra fræðslupakka eftir að 6 mánuðir hafa liðið af áskrift og virkni starfsfólks sýnileg í keyptum pökkum*  Í því felst að leggja þarf fram gögn sem styðja við notkun.

Með umsókn þarf að fylgja greinagerð sem tekur á eftirfarandi:  

  • Fræðsluáætlun fyrirtækis
  • Hvernig fyrirtækið kemur fræðslunni á framfæri til ákveðinna hópa innan fyrirtækis 
  • Hvaða fræðsla** hefur verið keyrð frá áskrift og hvaða fræðsla er fyrirætluð fyrir ákveðna hópa fyrirtækis 
  • Hvenær og hvernig starfsfólki er ætlað að nýta fræðsluna 
  • Sýnt er fram á að 80% félagsmanna hafi tekið þátt í fræðslu sem hluti af starfsþróun þeirra

  Til viðbótar gilda skilyrði almennra umsókna ásamt fylgigögnum.  

*Á ekki við þegar keyptir eru fræðslupakkar fyrir einstaka starfsfólk

** námskeið, spretti, ákveðna pakka eða annað sem fellur undir fræðslu.