Eftirfarandi telst styrkhæft:
- Það nám eða námskeið sem telst til starfsmenntunar
- Skólagjöld í framhaldsskóla, þ.m.t. efniskostnaður sem telst til hluta skólagjalda en undanskilin eru öll gjöld sem teljast valfrjáls, s.s. skóla- og nemendafélagsgjöld
- Prófa- og skírteinisgjöld sem órjúfanlegur hluti af námi /námslokum
- Starfstengd markþjálfun sem nemur að hámarki 12 tímum innan almanaksárs. Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um markþjálfann en skilyrt er að markþjálfinn hafi lokið námi í markþjálfun frá viðurkenndum skóla. Þá verður fjöldi tíma að koma fram á reikningi.
- Raunfærnimat
Athugið að sjóðnum er ekki ætlað að styrkja líkamsrækt eða námskeið sem hafa það að markmiði að vinna með heilsubrest einstaklinga. Nám, námskeið eða markþjálfun sem eru hluti af meðferðarúrræðum vegna heilsubrests eru því ekki styrkt sérstaklega af starfsmenntasjóðnum.
Athugið að reikningur þarf alltaf að vera á kennitölu fyrirtækis, ætli fyrirtækið að sæka um styrk vegna náms starfsmanns.