Starfsafl veitir styrki til verkefna sem stuðla að nýsköpun, þróun og auknum gæðum í starfsmenntun. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem nýtast sem flestum félagsmönnum sjóðsins og skapa varanlegt virði fyrir íslenskan vinnumarkað.
Á síðustu árum hefur Starfsafl styrkt fjölbreytt þróunarverkefni, meðal annars gerð kennsluefnis, stafrænar lausnir, myndbönd, námsefni, handbækur, fræðsluvefi, raunfærnimat og önnur verkefni sem styðja við hæfni og starfsþróun. Með þessum hætti hefur orðið til fjölbreytt safn fræðsluefnis sem nýtist ólíkum atvinnugreinum og starfshópum.
Allar umsóknir um námsefnisgerð, nýsköpunar- og þróunarstyrki eru teknar til umfjöllunar hjá stjórn Starfsafls sem metur þær á grundvelli markmiða sjóðsins og þess ávinnings sem verkefnið getur skapað fyrir félagsmenn.
Allar umsóknir um námsefnisgerð, nýsköpunar- og þróunarstyrki eru teknar til umfjöllunar hjá stjórn Starfsafls sem metur þær á grundvelli markmiða sjóðsins og þess ávinnings sem verkefnið getur skapað fyrir félagsmenn.
Öllum er velkomið að leggja inn umsókn. Umsóknareyðublað vegna námsefnisgerðar, nýsköpunar- og þróunarstyrkja má finna hér.
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.