Mjólkursamsalan fær Fræðslustjóra að láni
![MS_A4 isl.indd](https://starfsafl.is/wp-content/uploads/2016/10/ms_baekl_1jun_isl-76.jpg)
Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greining og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af sjóðunum og Iðunni, fræðslusetri.
Mjólkursamsalan er fjölbreyttur vinnustaður með hátt í sexhundruð starfsmenn á fimm starfsstöðvum. Bakgrunnur starfsmanna er ólíkur sem og fagmenntun þeirra en hópur sem býr hvort tveggja yfir mikilli þekkingu og færni í sínu starfi. Það er markmið Mjólkursamsölunnar að hjá félaginu starfi á hverjum tíma hæfir og metnaðarfullir starfsmenn. Félagið leggur áherslu á gott og hvetjandi vinnuumhverfi og að starfsmenn fái tækifæri til að eflast og þroskast í starfi. Starfsfólk er hvatt til að efla færni sína í takt við þær kröfur sem gerðar eru til félagsins og þrátt fyrir krefjandi vinnuumhverfi er Mjólkursamsalan að sama skapi skemmtilegur vinnustaður þar sem starfsfólki líður vel.