Minnum á allt að 90% endurgreiðslu

Í apríl síðastliðnum samþykkti stjórn Starfsafls  allt að   90% endurgreiðslu af kostnaði vegna starfstengdra námskeiða / náms í stað 75% endurgreiðslu, til að mæta núverandi ástandi í samfélaginu.  Miðað var við tímabilið 15.mars til 15. júní 2020 sem síðan var framlengt til 30. september 2020. 

Hækkun styrkfjárhæðar á  við um styrki til einstaklinga sem og fyrirtækja og tekur til náms sem keypt er og reikninga sem gefnir eru út á tímabilinu 15. mars til  30. september 2020 og uppfylla eftirfarandi skilyrði, sjá hér

Vegna einstaklinga:

Vegna styrkja til einstaklinga gilda þær reglur sem fyrir eru og taka til áuninna réttinda en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%. Sjá reglur hér

Vegna fyrirtækja:

Vegna styrkja til fyrirtækja gilda þær reglur sem fyrir eru en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%. Sjá reglur hér

Því til viðbótar er á það bent að fyrirtæki sem hafa nú þegar fengið styrk vegna stafræns fræðsluumhverfis geta jafnframt nýtt sér þetta og fengið allt að 90% endurgreiðslu á kostnaði vegna stafrænna námskeiða sem keypt eru.  

Athugið að sem fyrr þarf að skila inn lýsingu námskeiðs, greiddum reikningi og lista yfir þátttakendur þar sem fram koma nöfn, kennitölur og stéttafélagsaðild. 

Ekki hika við að senda okkur línu ef frekari upplýsinga er þörf.

* Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar, VSFK eða Hlífar, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna

Myndin með fréttinni er fengin hér