Menntaverðlaun atvinnulífsins 2021

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í áttunda sinn þann 4. febrúar 2021. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 21. desember nk.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2021,en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:
• að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins
• að sem flest starfsfólk taki virkan þátt
• að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum
• að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:
• að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
• samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu,innan sem utan fyrirtækja.

Tilnefningar og fylgiskjöl sendist rafrænt í tölvupósti á verdlaun@sa.is eigi síðar en mánudaginn 21. desember nk. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma