Menntamorgnar atvinnulífsins
Menntamorgnar atvinnulífsins fara af stað aftur 7. október næstkomandi og hefst fyrsti fundur haustsins klukkan 8:30. Boðið verður upp á morgunkaffi en áætlað er að fundinum ljúki kl. 9:30. Menntamorgnar eru samstarfsverkefni SA og aðildarsamtaka og hafa verið vel sóttir af þeim sem starfa á vettvangi mannauðs- og fræðslumála.
Fundurinn ber yfirskriftina Hæfni í atvinnulífinu … Hver ber ábyrgð á henni?
Sigríður Guðmundsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) í upphafi árs 2021. Sigríður hefur starfað um árabil í ýmsum mannauðs- og fræðslumálum m.a. sem fræðslu- og mannauðsstjóri Eimskips, ráðgjafi hjá Attentus – Mannauður og ráðgjöf og sem grunnskólakennari.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er að stærstum hluta í eigu SA og ASÍ og hefur það hlutverk að veita fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið formlegu námi úr framhaldsskóla tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína. Þessu hlutverki sinnir FA með því að greina, meta og þróa leiðir og aðferðir til að auka hæfni á vinnumarkaði í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar og atvinnulífi um allt land.
Í síbreytilegum heimi þar sem tækni og nýsköpun skipta sífellt meira máli hefur sjaldan verið mikilvægara að viðhalda hæfni og þekkingu í samræmi við kröfur atvinnulífsins. Sigríður ætlar í spjalli sínu að fara yfir verkfæri sem FA hefur þróað og geta nýst atvinnulífinu til aukinnar hæfniþróunar.
Hröð tækniþróun eykur möguleikana á sveigjanlegum, skilvirkum og hagkvæmum valkostum þegar kemur að þessari fræðslu þar sem rafrænt námsumhverfi er í forgrunni. Með rafrænu námsumhverfi skapast lausnir og tækifæri fyrir öll fyrirtæki en ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki sem og fyrirtæki á landsbyggðinni.
Morgunfundirnir eru frábær leið til að vera með puttann á púlsinum í fræðslu og símenntun fyrirtækja.
Skráning fer fram á vef Samtaka atvinnulífsins, sjá hér
Myndin er fengin að láni af vef SA.