Menntadagur atvinnulífsins 2023

Menntadagur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður þar sem menntamál eru í brennidepli. Fundurinn í ár ber yfirskriftina Færniþörf á vinnumarkaði og er haldinn í Hörpu þriðjudaginn 14. febrúar nk. kl. 09:00 – 10:30.  

Á fundinum verður eftirspurn eftir vinnuafli greind þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar svo vinnuaflsskortur, hvort sem um er að ræða hæfni og færni eða einfaldlega í fjölda vinnandi handa, verði ekki til þess að vöxtur í atvinnu- og efnahagslífi verði minni en ella hefði orðið.

Aðgerðir í mennta- og fræðslumálum er varða námsframboð, breytingar varðandi dvalar- og atvinnuleyfi erlends starfsfólks og öðru sem aukið gæti sveigjanleika á íslenskum vinnumarkaði gagnast best ef ákvörðunin er byggð á áreiðanlegum gögnum. Marktæk spá um færniþörf er þar lykilatriði.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, veitir menntaverðlaun atvinnulífsins þeim fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið sem fara fyrir óháða valnefnd.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku , Samtaka ferðaþjónustunnar , Samtaka fjármálafyrirtækja , Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi , Samtaka iðnaðarins , Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Myndin er fengin af vef Samtaka atvinnulífsins