Má bjóða þér í kaffi til okkar?

Það er komið að fyrsta kaffispjalli ársins hjá okkur hér í Starfsafli.  Ef þú hefur aldrei komið þá hvetjum við þig til að skrá þig.

Fyrir þá sem ekki þekkja þá felur kaffispjallið það í sér að við bjóðum þeim sem hafa með mannauðs- og fræðslumál að gera, til okkar í morgunkaffi. Þannig getum við hlustað, tekið samtalið, lært og leitað leiða til að mæta þörfum fyrirtækjanna og starfsmanna þeirra. Þá er ekki síður ávinningur fyrir okkar gesti að koma hingað á skrifstofu Starfsafls, kynnast sjóðnum betur, heyra hvað aðrir eru að gera í sínum mannauðs- og fræðslumálum og vonandi mynda gagnlegar tengingar.

Um er að ræða fámenna morgunfundi, hámark 6 gesti, enga dagskrá en skemmtilegar umræður ef vel tekst til. Við hvetjum sérstaklega þá sem aldrei hafa komið til að kíkja á okkur. 

Þetta fyrsta kaffispjall ársins verður þriðjudaginn 28. janúar næstkomandi, frá kl. 9:30 til 11:00.  Skráning á lisbet@starfsafl.is

Vertu velkomin/n