Leiðtogaþjálfun fyrir 19 starfsmenn meðal veittra styrkja til fyrirtækja í mars

Þegar líður á árið fer fræðslustarf fyrirtækja jafnan á meira skrið og mars er víða tími námskeiða, fræðslu og starfsþróunar, tíminn sem á að nýta áður en það vorar. 

Fræðsla í fyrirtækjum snýst um svo margt; starfsbundna þekkingu, stjórnun, samskipti, þjónustu og faglega færni svo fátt eitt sé talið. Markmiðið er á endanum hið sama, að starfsfólk búi yfir þeirri hæfni sem þarf til að takast á við verkefni dagsins í dag og breytingar morgundagsins.

Þær umsóknir sem bárust Starfsafli frá fyrirtækjum í mars voru nokkuð hefðbundnar, en þó var áhugavert og óvenjulegt að sjá að tvær umsóknir voru vegna leiðtoganámskeiða, en 19 starfsmenn frá tveimur fyrirtækjum sóttu slík námskeið hjá Leiðtogaþjálfun (Dale Carnegie).  

Það er ánægjulegt að sjá fyrirtæki fjárfesta með þessum hætti í stjórnendum og leiðtogum. Góður árangur fyrirtækja byggist ekki eingöngu á faglegri þekkingu starfsfólks heldur einnig á hæfni þeirra sem leiða starfið. Stjórnendur þurfa að geta átt góð samskipti, veitt endurgjöf, byggt upp traust og skapað umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.

Leiðtogaþjálfun er því ekki síður mikilvægur hluti starfsþróunar en önnur fagleg fræðsla. Þegar fyrirtæki fjárfestir í hæfni stjórnenda sinna getur sú fjárfesting skilað sér langt út fyrir einstaklinginn sjálfan og haft áhrif á allt starfsumhverfið.

Að því sögðu bárust í mars 23 umsóknir frá 16 fyrirtækjum  og heildarfjárhæð var um 3.3. milljónir króna. Aðeins einni umsókn var hafnað þar sem hún var á kennitölu starfsmanns en ekki fyrirtækis, eins og reglur sjóðsins segja til um.  Þessi fjárhæð er ekki há en því má ekki gleyma að á bak við þessa fjárhæð eru 252 starfsmenn sem fengu tækifæri til að bæta við þekkingu sína og hæfni. 

Fræðslan skiptist sem hér segir:

Leiðtogaþjálfun
ADR
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Frumnámskeið
Íslenska
Líkamsbeiting
Skyndihjálp
Tölvunámskeið / Teams
Vínnámskeið
Vinnuvélapróf

Styrkir til einstaklinga

Samanlögð styrkfjárhæð í mars til einstaklinga var  41,2 milljónir króna og skiptist á milli félaganna samanber eftirfarandi:

Efling kr. 29.913.810,-

VSFK kr. 7.654.134,-

Hlíf kr. 4.644.991,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin er fengin hér

Skrifstofa Starfsafls veitir frekari upplýsingar um styrki til fyrirtækja og þær reglur sem þar gilda.