Klasasamstarf í Hveragerði

Þau fyrirtæki sem taka þátt í verkefninu eru Frost og funi, Skyrgerðin-Cafe & Bistro, Hótel Örk, Hoflandsetrið, Almar bakari og Gistiheimilið Frumskógar. Alls starfa um 100 starfsmenn hjá þessum 6 fyrirtækjum. Áætlað er að fara af stað með verkefnið núna í nóvember og að fræðsluáætlunin verði tilbúin í lok janúar 2017.
Tveir starfsmenntasjóðir koma að verkefninu, Starfsafl og SVS, og er styrkupphæðin rúmar 800 þús kr. sem skiptist hlufallslega á milli sjóðanna m.v. fjölda og stéttarfélagsaðild starfsmanna.