Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Starfsemi setursins snýst um að uppfylla þarfir ferðaþjónustunnar fyrir aukna hæfni og auðvelda fyrirtækjum að fjárfesta í hæfni starfsmanna. Byggt verður m.a. á hæfnigreiningum starfa til að undirbúa fræðslu og þjálfunarúrræði. Þá verður lögð áhersla á samvinnu við greinina, aðila vinnumarkaðarins, fræðsluaðila og stjórnvöld við að þróa leiðtogafræðslu, námslotur fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu, þrepaskipt starfsnám og raunfærnimat í starfsgreinum ferðaþjónustunnar.
Starfsafl fagnar þessum merka áfanga og mun leggja sitt afl á vogarskálarnar.
Hér má lesa frétt Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Myndin er fengin að láni af vef Fræðlumiðstöðvar atvinnulífsins og er frá undirritun samnings um Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.