Nýverið samþykkti stjórn Starfsafls fjóra nýsköpunar- og þróunarstyrki sem styðja við markvissa uppbyggingu starfs- og símenntunar á íslenskum vinnumarkaði. Verkefnin eru jafn ólík og þau eru mörg en eiga það öll sameiginlegt að styrkja hæfniþróun starfsfólks, hvetja til samtals og stuðla að nýjum lausnum sem mæta breyttum þörfum atvinnulífsins. Með styrkveitingunum er lögð áhersla á bæði stafræna þróun, aukið samstarf og fræðslu sem nýtist fjölbreyttum hópi fyrirtækja og starfsfólks.
Með styrkveitingunum er lögð áhersla á bæði stafræna þróun, aukið samstarf og fræðslu sem nýtist fjölbreyttum hópi fyrirtækja og starfsfólks.
Styrkirnir voru sem hér segir:
Rafrænt umsýslukerfi fyrir raunfærnimat / Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Verkefnið felur í sér uppbyggingu miðlægs, rafræns umsýslukerfis fyrir raunfærnimat á landsvísu. Markmiðið er að einfalda og samræma ferli raunfærnimats, stytta leiðir til viðurkenningar á hæfni og auka skilvirkni í framkvæmd. Með kerfinu verður skapaður sameiginlegur stafrænn vettvangur sem nýtist fræðsluaðilum, fyrirtækjum og einstaklingum og styður þannig við gagnsæi, samræmi og aukið aðgengi að raunfærnimati sem leið til hæfniuppbyggingar.
Þróun stafræns verkfæris til færni- og þekkingargreiningar / Hæfnisetur atvinnulífsins
Verkefnið snýr að þróun stafrænnar lausnar sem gerir stjórnendum kleift að greina hæfniþarfir starfsfólks með markvissum hætti og byggja upp skipulagða fræðsluáætlun. Lausnin verður aðgengileg á stafrænu vinnusvæði og er hönnuð til að styðja við sí- og endurmenntun innan atvinnugreina, með áherslu á notendavænt viðmót. Verkefnið styrkir getu fyrirtækja til að vinna kerfisbundið með hæfniþróun og aðlaga fræðslu að breyttum aðstæðum og þörfum.
Menningarlæsi í mynd / Gerum Betur
Verkefnið felur í sér þróun kennslumyndbands og stutts netnámskeiðs sem styður vinnustaði í að efla menningarlæsi og samskiptafærni í fjölbreyttum starfsmannahópum. Efnið tengir fræðilega þekkingu um menningarmun við raunhæfar aðstæður á íslenskum vinnumarkaði og er ætlað að nýtast bæði starfsfólki og stjórnendum. Með verkefninu er leitast við að draga úr misskilningi, efla gagnkvæma virðingu og styrkja fagmennsku í samskiptum á vinnustöðum.
Menntadagur atvinnulífsins 2026 / Samtök atvinnulífsins
Menntadagur atvinnulífsins er árlegur vettvangur um menntamál þar sem áhersla er lögð á samspil menntakerfis og atvinnulífs. Viðburðurinn dregur fram mikilvægi þess að fyrirtæki séu virkir þátttakendur í hæfniuppbyggingu og skapi umhverfi sem styður við símenntun og þróun starfsfólks. Með fjölbreyttri dagskrá og þátttöku fjölda hagaðila er Menntadagurinn mikilvægur samráðsvettvangur um framtíð menntunar og hlutverk atvinnulífsins í þeirri þróun.
Með þessum styrkveitingum styður Starfsafl við fjölbreytt verkefni sem sameiginlega styrkja innviði fræðslu, efla nýsköpun í starfsmenntun og stuðla að aukinni hæfni og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Nánar er hægt að lesa um nýsköpunar- og þróunarstyrki hér
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér