Eva Björk nýr starfsmaður
Í dag hóf störf hjá Starfsafli Eva Björk Guðnadóttir. Eva Björk mun taka við verkefnum Valdísar A. Steingrímsdóttur, verkefnastjóra Starfsafls, sem fer í ársleyfi um næstu mánaðarmót.
Eva Björk verður í hlutastarfi og fela verkefni hennar í sér þjónustu við viðskiptavini Starfsafls, afgreiðslu fyrirtækjastyrkja og almenna skrifstofuumsjón.
Starfsafl býður Evu Björk velkomna til starfa.