Vinnueftirlitið stendur nú fyrir vitundarvakningunni Ekki treysta á heppni sem er ætlað að minna á notkun viðeigandi fallvarna og öryggisbúnaðar en fall úr hæð er ein algengasta orsök banaslysa við vinnu hér á landi samanber frétt á vef Vinnueftirlitsins. Þá segir jafnframt eftirfarandi:
- að fall á jafnsléttu er almennt algengasta orsök vinnuslysa á Íslandi eða 25% tilkynntra vinnuslysa
-
að fall úr hæð getur valdið alvarlegum áverkum og er 10% tilkynntra vinnuslysa og ein algengasta ástæða banaslysa við vinnu.
Mannvirkjavinnustaðir þurfa, líkt og aðrir vinnustaðir, að setja öryggi og vellíðan starfsfólks í forgang. Fyrirtæki sem bjóða sínu starfsfólki upp á námskeið í fallvörnum (vinnu í hæð) geta fengið 90% endurgreiðslu á reikning vegna námskeiða í fallvörnum, samanber reglur sjóðsins um styrki til fyrirtækja, sjá hér.
Þá styrkir sjóðurinn einnig önnur námskeið sem hafa með öryggi og vinnuvernd að gera, svo sem brunavarnir, skyndihjálp og ógnandi hegðun.
Við hvetjum fyrirtæki til að kynna sér reglur sjóðsins og hafa samband við skrifstofu Starfsafls ef frekari upplýsinga er óskað.
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.