Dagar hf fá fræðslustjóra að láni

Nýverið var undirritaður samningur um verkefnið Fræðslustjóri að láni við Daga hf.  Auk Starfsafls koma Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks að verkefninu og greiðir hver sjóður fyrir sig hlutfallslega fyrir félagsmenn sinna stéttafélaga.  Starfsafl er sá sjóður sem á flesta félagsmenn, 693 af 835 starfsmönnum, og leiðir því vinnuna.

Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og nær saga þess allt aftur til ársins 1980. Hjá Dögum starfa um 850  einstaklingar um allt land í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón auk þess sem fyrirtækið býður upp á  vinnustaðalausnir þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum. 

Á vefsíðu fyrirtækisins segir að virk þátttaka og helgun starfsfólks sé lykillinn að velgengni fyrrtækisins, að árangur þess sé drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir fyrirtækisins kunni að meta.

Í umsókn fyrirtækisins segir að fyrirtækið  leggji áherslu á fræðslu og þróun starfsmanna og að fyrirtækið vilji með þessu verkefni bæta frammistöðu, viðhalda samkeppnishæfni og auka starfsánægju og þróun starfsmanna.

Í umsókn fyrirtækisins segir að fyrirtækið  leggji áherslu á fræðslu og þróun starfsmanna og að fyrirtækið vilji með þessu verkefni bæta frammistöðu, viðhalda samkeppnishæfni og auka starfsánægju og þróun starfsmanna.

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins.

Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Ráðgjafi verkefnisins er Ragnar Matthíasson hjá RM ráðgjöf.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5181850

Myndin er fengin að láni af heimasíðu fyrirtækisins.

Um Starfsafl:

Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.

Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.