Nú geta einstaklingar sótt um ferðastyrk
Stjórn Starfsafls hefur samþykkt breytingu á reglum sjóðsins um styrki til einstaklinga. Um er að ræða viðbót við eldri reglur og tekur til ferðastyrks sbr. eftirfarandi.
Ferðastyrkur
Þegar félagsmaður ferðast erlendis í tengslum við starfstengt nám, námskeið eða ráðstefnu, getur hann sótt um ferðastyrk.
• Styrkurinn er eingöngu vegna flugs (ekki rútu, leigubíla eða annars).
• Hámarksferðakostnaður er kr. 40.000,- á ári en að hámarki 50% af reikningi.
• Með umsókn þarf að fylgja með staðfesting á námi, námskeið eða ráðstefnu, sem sótt er og greitt er fyrir af félagsmanni.
• Ferðakostnaður telst til einstaklingsstyrks og fellur undir reglur þar um.Í því felst að hámarksgreiðsla á ári er kr. 100.000,- fyrir starfstengt nám, námskeið eða ráðstefnu og kostnað vegna ferðar samanlagt.
Athugið að reglan gildir aðeins um reikninga gefna út eftir 1. janúar 2018
Að öðru leyti gilda reglur um einstaklingsstyrki og skil á gögnum
Reglan er afturvirk og tók því gildi 1. janúar 2018. Allar umsóknir sem bárust frá þeim tíma til dagsins í dag verða því leiðréttar þar sem það á við.