Blue Car Rental fær Fræðslustjóra að láni
Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóri að láni við fyrirtækið Blue Car Rental.
Auk Starfsafls koma Iðan og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks að verkefninu og greiðir hver sjóður fyrir sig hlutfallslega fyrir félagsmenn sinna stéttafélaga. Starfsafl er sá sjóður sem á flesta félagsmenn og leiðir því vinnuna.
Blue Car Rental var stofnað árið 2010 og sérhæfir sig í leigu bíla. Í upphafi voru bílarnir aðeins fimm en í dag telur bílaflotinn yfir tvö þúsund bíla, sem gerir Blue Car Rental eina af stærstu bílaleigum landsins. Starfsfólk er 100 talsins.
Í umsókn segir að fyrirtækið óski eftir að fá fræðslustjóra að láni í þeim tilgangi að greina með starfsfólki og stjórnendum fræðsluþarfir fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur fram til þessa greint fræðsluþarfir sjálft og myndast hafi ágætis menning þar sem fólk sækir sér fræðslu sjálft ásamt því að fyrirtækið skipuleggi sameiginlega fræðslu.
Þá segir jafnfram að stjórnendur fyrirtækisins séu sammála því að fá utanaðkomandi aðila til að meta fræðsluþarfir og að afurðin verði fræðsluáætlun sem stjórnendur hafa aðild að ásamt starfsfólki. “Við bindum vonir við að utanaðkomandi aðili með reynslu af því að framkvæma fræðslugreiningar skili sér í betri og viðameiri fræðsluáætlun sem hægt er að byggja á til framtíðar innan fyrirtæksins,, segir jafnframt í umsókn.
Við bindum vonir við að utanaðkomandi aðili með reynslu af því að framkvæma fræðslugreiningar skili sér í betri og viðameiri fræðsluáætlun sem hægt er að byggja á til framtíðar innan fyrirtæksins,
Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins.
Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.
Ráðgjafi verkefnisins er Ragnar Matthíasson hjá RM ráðgjöf.
Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5181850
Myndin tengist fyrirtækinu ekki og er fengin hér.
Um Starfsafl:
Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.
Styrkir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.