Bed and Breakfast fær Fræðslustjóra að láni
Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Gistiheimilið Bed and Breakfast í Reykjanesbæ. Gistiheimilið er það stærsta á svæðinu og vel staðsett við Keflavíkurflugvöll. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 20 talsins og verkefnið að fullu styrkt af Starfsafli.
Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni.
Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.
Stjórnendur fyrirtækisins vilja með verkefninu setja fræðslu fyrirtækisins í fastar skorður og fjárfesta þannig enn frekar í mannauð fyrirtækisins.
Ráðgjafi verkefnisins er Miðstöð símenntunar á suðurnesjum.
Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550
Myndin er fengin að láni af vefsíðu fyrirtækisins.