Atvinnulífið speglast í tölum mánaðarins

Það er alltaf jafn áhugavert um mánaðarmót að skoða tölur mánaðarins, bera saman við síðasta mánuð og síðasta ár og sjá hvernig atvinnulífiið speglast í þeim námskeiðum sem eru sótt, fjölda og fjárhæðum.   

Í maí  voru greiddar 22.3 milljónir króna í styrki til einstaklinga og fyrirtækja, 5 milljónun króna hærri fjárhæð en greidd var á sama tíma á síðasta ári. 

Það er fagnaðarefni og ljóst að fræðsla er í fullum gangi í fyrirtækjum landsins og einstaklingar láta sitt ekki eftir liggja.

Styrkir til fyrirtækja

19 umsóknir frá 10 fyrirtækjum bárust sjóðnum í mánuðinum en þar af eru 5 umsóknir vegna nýliðafræðslu enn í vinnslu. Þegar um fræðslu fyrir nýja starfsmenn er að ræða þarf að hinkra aðeins með umsóknir og skila þeim inn þegar ljóst er að skilagreinar hafa skilað sér til staðfestingar á því að félagsmenn eru í starfi hjá viðkomandi fyrirtæki. Það getur tekið allt að 2 mánuði og því er ráðlagt fyrir fyrirtæki að sækja um vegna sumarstarfsfólks að hausti.

Þá er alltaf gaman þegar ný fyrirtæki sækja um í sjóðinn og að þessu sinni bættist tvö ný fyrirtæki í hópinn og í báðum tilfellum var um að ræða styrk vegna vinnuvélaréttinda fyrir starfsmenn.

Heildarfjárhæð afgreiddra styrkja var 2,3 milljónir króna og aftur bera að hafa í huga að enn eru 5 umsóknir óafgreiddar.

Námskeiðin voru margvísleg og sem hér segir;

Einelti á vinnustað
Eigin fræðsla
Frumnámskeið
Íslenska
Kerrupróf
Lean námskeið
Leiðtogaþjálfun
Ofbeldi í Covid
Öryggis- og skyndihjálp
Öryggisfræðsla
Samskipti á vinnustað
Skattar og gjöld
Stafrænt námsumhverfi
Viðbúnaður v/ Covid 19
Vinnuvélanám
Vinnuvélapróf

Styrkir til einstaklinga í krónum talið voru sem hér segir:

Efling kr.13,227,412,-

VSFK kr. 4,613,069,-

Hlíf kr.2,266,290,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér