Áskrift að stafrænum fræðslupökkum og öppum

Öll upptekin fræðsla (myndbönd og annað stafrænt margmiðlunarefni), fræðslusöfn og fræðsluöpp eru styrkt  50% af reikningi.   Einstaklingsáskriftir að fræðslusöfnum og fræðsluöppum sem fyrirtæki kaupa fyrir starfsmenn sína eru styrktar  90% af reikningi. 

Með öllum umsóknum  þarf  að skila inn grunngögnum samanber eftirfarandi:

1. Upplýsingar um fræðsluna (stutta samantekt á efnisþáttum eða lýsingu á nám, slóð á vefsíðu)

2. Reikningur  á kennitölu fyrirtækis, þar sem sundurliðun kostnaðarþátta er skýr. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.  

3. Staðfesting á greiðslu, þ.e. bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum.

4. Listi  yfir þátttakendur, nöfn, kennitölur og stéttarfélagsaðild  (í excel skjali)

5. Yfirlit yfir skil á starfsmenntaiðgjaldi  vegna þess starfsfólks sem telst til félagsfólks Eflingar, sjá nánar hér

 

Ofangreindar breytingar voru samþykktar  á stjórnarfundi 16. desember 2025 og tekur til reikninga sem gefnir eru út og greiddir eftir 1. janúar 2026. 

Sjá frétt hér