Sí- og endurmenntun er ein af meginstoðum samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og lykilþáttur í að efla hæfni, öryggi og fagmennsku starfsfólks. Með markvissum stuðningi við fræðsluverkefni fyrirtækja styður Starfsafl fyrirtæki og starfsfólk við að takast á við breyttar kröfur á vinnumarkaði, innleiða nýja þekkingu og styrkja innri innviði sína til framtíðar. Mikilvægt er að enginn sitji eftir og allir hafi þá þekkingu og færni sem þarf til að mæta verkefnum morgundagsins.
Að því sögðu fór árið vel af stað hjá Starfsafli en sjóðnum barst fjöldi umsókna í janúar auk þess sem nokkrar umsóknir frá fyrra ári voru afgreiddar, umsóknir sem bárust eftir sett tímamörk sjóðanna.
Í janúar var greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja 6 milljónir króna. Á bak við þá tölu eru 38 umsóknir, 24 fyrirtæki og 415 félagsmenn. Þremur umsóknum var því miður hafnað, tveimur þar sem enginn félagsmanna tilheyrði Starfsafli og einni þar sem gögn voru endurtekin, þ.e. fyrirtækið hafði fengið greiddan styrk vegna sama reiknings á síðasta ári.
Í janúar var greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja 6 milljónir króna. Á bak við þá tölu eru 24 fyrirtæki og 415 félagsmenn.
Að því sögðu er vert að minnast á það að öll fyrirtæki á almenna markaðnum með starfsfólk í Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði, Eflingu og VSFK geta sótt um styrk til Starfsafls, starfsmenntasjóð Samtaka atvinnulífins og áðurnefndra félaga.
Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma. Það þarf því ekki að ganga frá sérstakri aðild eða vera í Starfsafli þar sem réttur til að sækja um myndast sjálfkrafa um. leið og launatengd gjöld starfsmanns eru greidd. Einfaldara getur þetta ekki verið.
Mikilvægt er að enginn sitji eftir og allir hafi þá þekkingu og færni sem þarf til að mæta verkefnum morgundagsins.
Þau námskeið sem voru sótt í janúar voru fjölbreytt samanber eftirfarandi lista:
Aukin ökuréttindi
Breytingastjórnun
Brunavarnir
Ekko
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Fallvarnir
Gæðastjórnun
Gerð fræðsluefnis
Íslenska
Meirapróf
Öryggisnámskeið / v. súerefnistanka
Skyndihjálp
SSG öryggisnámskeið
Starfslokanámkseið
Stjórnendaþjálfun
Þjónusta fyrir framlínu
Þjónustuupplifun
Tölvunámskeið: Power BI
Verkstjóranámskeið
Vinna í hæð og lokuðu rými
Vínnámskeið
Vinnuvélaréttindi
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Starfsafl áskilur sér rétt til að gera athugasemdir eða takmarka styrkveitingu ef verðlagning náms getur ekki talist í samræmi við viðmið markaðarins, ef ætla má að skilgreindur undirbúningstími sé umfram það sem eðlilegt getur talist, ef vísbendingar eru um að verðlagning taki til ráðgjafar eða ber þróunarkostnað umfram það sem eðlilegt má teljast. Að gefnu tilefni áskilur Starfsafl sér rétt til að hafna umsóknum.
Myndin með fréttinni er fengin hér