Við sem störfum hér hjá Starfsafli getum seint undirstrikað mikilvægi þess að eiga gott samtal við forsvarsmenn fyrirtækjanna sem félagsmenn okkar starfa hjá, til að sjá hvað betur mætti fara í starfsmenntamálum þess hóps.
Sem lið í því bjóðum við þeim sem hafa með mannauðs- og fræðslumál að gera, til okkar í morgunkaffi. Þannig getum við hlustað, tekið samtalið, lært og leitað leiða til að mæta þörfum fyrirtækjanna og starfsmanna þeirra. Þá er ekki síður ávinningur fyrir okkar gesti að koma hingað á skrifstofu Starfsafls, kynnast sjóðnum betur, heyra hvað aðrir eru að gera í sínum mannauðs- og fræðslumálum og vonandi mynda gagnlegar tengingar.
Um er að ræða fámenna morgunfundi, hámark 6 gesti, enga dagskrá en skemmtilegar umræður ef vel tekst til. Við hvetjum sérstaklega þá sem aldrei hafa komið til að kíkja á okkur.
Næsti kaffimorgun er áætlaður föstudaginn 16. mars nk. kl. 9:30 og skráning er á netfangið [email protected] Athugið, að vegna takmörkunar á þátttöku er skráning nauðsynleg.
Vertu velkomin/n