ALP hf fær Fræðslustjóra að láni.

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Alp hf. Fyrirtækið rekur bílaleigur undir merkjum AVIS um land allt sem gerir viðskiptavinum fyrirtækisins kleyft að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Einkunnarorð fyrirtækisins eru “Að gera betur” og endurspeglast þau einkunnarorð heilt yfir í rekstrinum, þar með talið í mannauðs- og fræðslumálum.

Fyrirtækið hefur vaxið ört og eru starfsmenn fyrirtækisins í dag um 160 talsins og á háannatíma starfa allt að 220 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Með verkefninu vill fyrirtækið bregaðst við þeim mikla vexti sem fyrirtækið hefur gengið í gegnum undanfarin ár og formfesta enn frekar þjálfun starfsfólks svo það geti sinnt störfum sínum af fagmennsku.

Verkefnið er styrkt af Starfsafli og SVS og felur það í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni.

Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Ráðgjafi verkefnisins er Miðstöð símenntunar á suðurnesjum.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550

Myndin er fengin að láni af vef fyrirtækisins.