Afgreiðsla umsókna fyrir áramót

Við viljum vekja athygli á því að umsóknir fyrirtækja þurfa að berast fyrir föstudaginn 16 desember ef þær eiga að fá afgreiðslu fyrir áramót. Ekki ert tryggt að umsókn sem berst eftir þann tíma verði afgreidd fyrr en á nýju ári.

Því fyrr sem umsókn berst, því betra !

Við viljum minna á að fyrirtæki geta sótt um styrk og lagt fram reikning sem er allt að ársgamall. Skilyrði er að sá starfsmaður sem sótt er um styrk vegna hafi verið starfandi hjá fyrirtækinu þegar námskeið fór fram, nafn hans og kennitala komi fram á reikningi þar sem fyrirtækið er tilgreindur greiðandi og iðgjöld hafi borist viðkomandi stéttafélagi.

Mikilvægt er að vanda umsóknir, setja gögn inn með þeim hætti að auðvelt sé að lesa þau saman (ekki hrúga inn reikningum og greiðslukvittunum)  og gæta þess að öll tilskylin gögn fylgi. 

Umsóknir til Starfsafls eru afgreiddar innan 5 virkra daga, ef ofangreint er í lagi.

Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna. Sótt er um á www.attin.is

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á lisbet@starfsafl.is Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér