Afgreiðsla umsókna fyrir áramót
Við viljum vekja athygli á því að umsóknir fyrirtækja þurfa að berast fyrir fimmtudaginn 20. desember, ef þær eiga að teljast til ársins og þá vera afgreiddar fyrir áramót.
Við viljum minna á að fyrirtæki geta sótt um styrk og lagt fram reikning sem er allt að ársgamall.
Skilyrði er að sá starfsmaður sem sótt er um styrk vegna hafi verið starfandi hjá fyrirtækinu þegar námskeið fór fram, nafn hans og kennitala komi fram á reikningi þar sem fyrirtækið er tilgreindur greiðandi og iðgjöld hafi borist viðkomandi stéttafélagi.
Nú er því tækifærið til að kíkja ofan í skúffu og finna reikninga vegna fræðslu og eða náms starfsfólks sem fyrirtækið hefur greitt, en ekki sótt um styrk vegna. Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar, VSFK eða Hlífar, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna.
Frekari upplýsingar má finna á vef Starfsafls undir styrkir til fyrirtækja, hægt er að hringja á skrifstofu Starfsafls eða senda okkur póst á [email protected]