Aðföng fá Fræðslustjóra að láni

Um miðjan desember var undirritaður samningur um verkefnið Fræðslustjóri að láni við Aðföng. Auk Starfsafls koma Starfsmenntasjóður verslunar-og skrifstofufólks og Iðan fræðslusetur að verkefninu og greiðir hver sjóður fyrir sig hlutfallslega fyrir félagsmenn sinna stéttafélaga.  Starfsmenntasjóður verslunar-og skrifstofufólks er sá sjóður sem á flesta félagsmenn og leiðir því vinnuna. 

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Fyrirtækið sinnir innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups. Að jafnaði starfa um 180 manns hjá fyrirtækinu.

Í starfsmannastefnu fyrirtækisins segir að markmið Aðfanga sé að fyrirtækið sé skipað hæfu, duglegu, vel þjálfuðu og traustu starfsfólki sem tileinkar sér og stendur vörð um gildi Aðfanga. Þá segir jafnframt að lögð sé áhersla á innri starfsþróun og að allt starfsfólk hafi jöfn tækifæri til að þróast í starfi.

Í umsókn fyrirtækisins segir að fræðslumálin hafi ekki verið í forgangi til þessa en með ráðningu mannauðsstjóra og öryggis-og vinnuverndunarfulltrúa sé  tækifæri til að gera betur.  Í því felist meðal annars að kanna þarfir starfsfólks og setja skýran ramma.  

Í umsókn fyrirtækisins segir að fræðslumálin hafi ekki verið í forgangi til þessa en með ráðningu mannauðsstjóra og öryggis-og vinnuverndunarfulltrúa sé tækifæri til að gera betur.  Í því felist meðal annars að kanna þarfir starfsfólks og setja skýran ramma.  

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins.

Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Ráðgjafi verkefnisins er Ragnar Matthíasson hjá RM ráðgjöf.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5181850

Myndin er fengin að láni af fésbókarsíðu fyrirtækisins.

Um Starfsafl:

Starfsafl fræðslusjóður er starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Sjóðurinn varð til á grundvelli kjarasamninga árið 2000 og hlutverk hans er að styrkja félagsmenn og fyrirtækin sem þeir starfa hjá, í starfsmenntun.

Stykir til einstaklinga eru afgreiddir af stéttafélögunum en Starfsafl afgreiðir styrki til fyrirtækja. Tekjur Starfsafls eru starfsmenntaiðgjald sem er samningsbundið gjald atvinnurekenda til sjóðsins, eins og um er samið á hverjum tíma.