Á bak við Áttina, vefgátt sjóða
Fræðslusjóðir atvinnulífsins voru að venju með kynningarbás á Menntadegi atvinnulífsins undir merkjum Áttarinnar, vefgáttar sjóða. Með tilkomu Áttarinnar varð gott samstarf enn öflugra og mikil áhersla lögð á samræmi og gott upplýsingaflæði á milli hagaðila. Í tilefni af deginum og því að allir voru þarna samankomnir, var ákveðið að smella í mynd sem tókst líka svona ansi vel.
Að vefgáttinni standa eftirtaldir sjóðir og fræðslusetur:
Starfsafl
Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks
Landsmennt
Sjómennt
Rafmennt
Iðan fræðslusetur
Samband stjórnendafélaga
Allar frekari upplýsingar um Áttina, má nálgast á www.attin.is