Fræðsluaðilar

Gott að vita fyrir þá sem taka að sér fræðslu á vinnustöðum eða bjóða upp á námskeið fyrir einstaklinga og hópa

Fjöldi fræðsluaðila, ráðgjafa og annarra sérfræðinga starfar sjálfstætt við starfstengda fræðslu,* markþjálfun eða kennslu til einstaklinga. Þessir aðilar eru oft ekki tengdir viðurkenndum fræðsluaðilum eða formlegum skólum, en gegna engu að síður afar mikilvægu hlutverki í símenntun og miðlun þekkingar. Við hjá Starfsafli fögnum því þegar slíkt fagfólk deilir sérþekkingu sinni og tekur virkan þátt í að efla hæfni einstaklinga og starfsfólk fyrirtækja. Í mörgum tilfellum er sú fræðsla sem þessir aðilar veita styrkhæf hjá sjóðnum. 

Vegna fyrirtækjastyrkja

Fyrirtækjastyrkir geta náð til sérhæfðrar fræðslu sem veitt er innan fyrirtækja af fagfólki með sérþekkingu á sínu sviði, þótt viðkomandi sé ekki viðurkenndur fræðsluaðili eins og á við um reglur um einstaklingsstyrki. Það er hinsvegar grundvallaratriði að sú fræðsla sem er í boði standi öðrum fyrirtækjum til boða og í því felst að hægt sé að afla upplýsinga um bæði fræðsluaðilann og fræðsluframboð, á vefmiðlum. 

Þegar fyrirtæki sækir um styrk á www.attin.is  þá þarf það að skila inn lýsingu á fræðslunni. Það er því mikilvægt að fyrirtækið fái í hendurnar eða geti sótt með einföldum hætti ágæta lýsingu á fræðslunni og upplýsingum um fræðsluaðilann, sem það getur skilað inn með umsókninni.

Vinnustofur sem snúa að stefnumótun, framtíðarsýn eða innri greiningu á starfsemi viðkomandi vinnustaðar falla ekki undir skilgreiningu formlegrar fræðslu eða námskeiðahalds. Í slíkum tilvikum er að jafnaði um að ræða vinnu sem miðar að því að meta, skilgreina og móta innri starfsemi, verklag eða stefnu, fremur en að miðla þekkingu, þjálfa færni eða stuðla að hæfniþróun starfsmanna með formbundnum hætti. Þá er ráðgjöf ekki styrkhæf.

Almennt er gert ráð fyrir því að þeir sem annast fræðslu fyrir vinnustaði búi yfir i menntun, hæfni og reynslu sem hæfir því efni sem boðið er upp á og sýnilegt á vefmiðli viðkomandi. 

Vegna einstaklingsstyrkja

Einstaklingsstyrkir eru tvennskonar:

Starfsmennt: Starfsmennt eru styrkir sem veittir eru vegna náms sem fram fer á framhalds- og háskólastigi, hjá viðurkenndum fræðsluaðilum og ökuskólum.  Því til viðbótar er raunfærnimat, áhugasviðsgreiningar og starfstengd markþjálfun styrkt.  

Hagnýtir fræðslustyrkir: Nám, námskeið og ráðstefnur sem fram fara hér á landi og eru til þess fallin að styrkja félagsfólk í starfi, s.s. markmiðasetning, samskipti, leiðtogaþjálfun, stjórnun, framkoma, sala og þjónusta. Fræðsluaðilar geta verið utan hins almenna skólakerfis en grundvallaratriði er, eins og með fyrirtækjastyrki, að sú fræðsla sem er í boði standi öðrum til boða og í því felst að hægt sé að afla upplýsinga um bæði fræðsluaðilann og fræðsluframboð, á vefmiðlum. 

Skilgreining á starfsnámi og uppbyggingu fræðslu

Starfsafl styðst við flokkun fræðsluaðila við skilgreiningu á því hvaða fræðsla fellur undir almennt starfsnám sbr. eftirfarandi: Afmarkaður hluti náms sem fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu og lýkur yfirleitt með vottun á frammistöðu eða annars konar staðfestingu

Uppbygging fræðslu:

  1. Hafa skýrt afmarkað upphaf og lok
  2. Hafa skilgreind markmið og efnistök
  3. Vera kennt af leiðbeinanda sem býr yfir viðeigandi hæfni og þekkingu

Viðmið um leiðbeinendur / fræðsluaðila

Almennt er gert ráð fyrir því að þeir sem annast fræðslu fyrir einstaklinga og vinnustaði búi yfir viðeigandi menntun, hæfni og reynslu sem hæfir því efni sem boðið er upp á.  

Leiðbeinendur skulu hafa faglega þekkingu og færni á viðkomandi sviði og geta sýnt fram á hæfni sína með viðeigandi gögnum, s.s. námsferli, starfsreynslu eða öðrum hæfnisvottunum, sé kallað eftir því.  Athugið sérstaklega auknar kröfur til þeirra sem kenna tungumál,.

Upplýsingar um leiðbeinanda skulu vera skýrar og aðgengilegar fyrir þátttakendur og sjóðinn og vera hluti af umsóknarferli fyrirtækja til sjóðsins.

Vegna tungumálakennslu

Á við um allt nám, námskeið og einkakennslu. 

Aðeins er hægt að sækja um starfsmenntastyrk vegna tungumálanáms sem fram fer hjá viðurkenndum fræðsluaðilum, sjá lista á vef stjórnarráðsins  og hjá fræðsluaðilum sem hafa verið samþykktir sérstaklega af starfsmenntasjóðunum, sjá lista hér.  1. janúar 2027 taka gildi nýjar reglur vegna tungumálanáms og frá þeim tíma verða aðeins veittir styrkir vegna náms sem fram fer í framhalds- eða háskóla eða hjá viðurkenndum fræðsluaðilum og sá listi sem starfsmenntasjóðirnir hafa haldið úti fellur niður.  

Leiðbeinandi á tungumálanámskeiðum sem óskar þess að vera á lista yfir samþykkta fræðsluaðila hjá Starfsafli þarf að hafa kennsluréttindi, marktæka þekkingu og reynslu af kennslu tungumála og búa yfir faglegum vinnubrögðum og metnaði til að skila góðri vinnu. 

Við mat á fræðsluaðilum er farið yfir tilgreind gögn til að tryggja að þeir uppfylli almenn hæfnisviðmið sjóðsins. Samþykki felur þó ekki í sér gæðamat, vottun eða ábyrgð af hálfu sjóðsins á innihaldi, framkvæmd eða árangri náms eða þjónustu. Sjóðurinn sinnir ekki reglubundnu eftirliti með starfsemi fræðsluaðila en komi fram ábendingar eða upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að fræðsluaðili uppfylli ekki viðmið sjóðsins áskilur sjóðurinn sér rétt til að kalla eftir frekari gögnum og upplýsingum um hlutaðeigandi fræðsluaðila. Meti Starfsafl það sem svo að fræðsluaðili uppfylli ekki skilyrði sjóðsins  kann það að leiða til þess að viðkomandi verði tekinn af lista yfir samþykkta fræðsluaðila.

Vegna útgefinna reikninga

Reikningar skulu vera sundurliðaðir ef þeir innihalda annan kostnað en beinan fræðslukostnað. Það er nauðsynlegt til að unnt sé að meta hvaða kostnaðarliðir eru styrkhæfir og því gott að kynna sér ágætlega þær reglur sem gilda.  Einnig er mikil hagræðing fólgin í því ef nafn / nöfn þátttakenda koma fram á reikningi eða fylgiskjali með reikning. 

Skilyrði og fyrirvarar

Starfsafl áskilur sér rétt til að taka til skoðunar og kalla eftir nánari upplýsingum um:

  • Efnisinnihald námskeiða
  • Kostnað
  • Hæfi leiðbeinenda

Starfsafl áskilur sér jafnframt rétt til að gera athugasemdir við eða takmarka styrkveitingu ef verðlagning náms telst ekki í samræmi við viðmið á markaði

Að gefnu tilefni áskilur Starfsafl sér rétt til að hafna umsóknum.

Vantar frekari upplýsingar ? 

Það er alltaf velkomið að hafa samband við skrifstofu Starfsafl með tölvupósti á [email protected]  og fá frekari upplýsingar.  

 

*Hugtakið fræðsla er notað til einföldunar á þessari síðu yfir allt nám, námskeið og erindi,hvort heldur hún fari fram innan eða utan vinnustaða eða í gegnum fjarfundabúnað eða upptökur.

Uppfært 10. september  2026