Sameiginlegur styrkur félagsmanns og fyrirtækis

Nám verður að kosta að lágmarki 200.000,- kr.

Reikningur getur verið á nafni félagsmanns eða fyrirtækis.  

Félagsmaður sækir um styrkinn hjá sínu stéttafélagi og fyrirtækið sækir um á vefgátt sjóða,  www.attin.is 

Með báðum umsóknum  þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:

  • Lýsing á námi
  • Reikningur.  
  • Staðfesting á greiðslu
  • Yfirlýsing fyrirtækis og einstaklings vegna sameiginlegrar umsóknar,sjá eyðublað hér

Við samþykkt umsóknar dregst styrkupphæðin af rétti beggja.

Þegar reikningur er á nafni félagsmanns þá er fyrst nýttur réttur félagsmanns og síðan fyrirtækis, þar til hámarki er náð. Þegar reikningur er á nafni fyrirtækis þá er fyrst nýttur réttur fyrirtækis og síðan félagsmanns, þar til hámarki er náð

Styrkur til félagsmanns greiðist inn á reikning félagsmanns og greiddur styrkur fyrirtækis greiðist inn á reikning fyrirtækis.

Við afgreiðslu umsóknar til fyrirtækis er höfð til hliðsjónar greidd styrkfjárhæð til félagsmanns. 

Til skýringa;

Athugið að styrkur til fyrirtækis getur aldrei orðið hærri en 300.000,- 

Styrkur til einstaklings getur aldrei orðið hærri en 180.000,- eða 540.000,- ef um uppsöfnun er að ræða.  Athugið einnig að styrkur getur aldrei orðið hærri en 90% af reikningi.

Samanlagður styrkur getur aldrei orðið hærri  90% af námskeiðsgjaldi 

Athugið að um tilraunaverkefni er að ræða, með fyrirvara um villur.  Starfsafl ásklur sér allan rétt til leiðréttinga og breytinga.