Góð samskipti verða ekki til af sjálfu sér. Þau byggjast á gagnkvæmri virðingu, skýrum væntingum og sameiginlegum skilningi á því hvaða hegðun er ásættanleg á vinnustað. Fræðsla um samskipti, vinnustaðamenningu og einelti ætti því að vera sjálfsagður hluti af fræðsluáætlun hvers fyrirtækis.
Með markvissri fræðslu má efla samskiptafærni starfsfólks, auka meðvitund um neikvæð samskipti og stuðla að því að brugðist sé við áður en ágreiningur þróast í alvarlegri mál. Slík fræðsla er ekki aðeins mikilvæg fyrir vellíðan starfsfólks heldur einnig fyrir samstarf, starfsanda og árangur fyrirtækja.
Með markvissri fræðslu má efla samskiptafærni starfsfólks, auka meðvitund um neikvæð samskipti og stuðla að því að brugðist sé við áður en ágreiningur þróast í alvarlegri mál. Slík fræðsla er ekki aðeins mikilvæg fyrir vellíðan starfsfólks heldur einnig fyrir samstarf, starfsanda og árangur fyrirtækja.
Í tilefni af Degi gegn einelti 8. nóvember síðastliðinn hefur Vinnueftirlitið gefið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum, í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis.
Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustöðum er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Einnig er fjallað um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og mikilvægi þess að grípa snemma inn í áður en mál stigmagnast. Jafnframt er bent á forvarnir og viðbrögð fyrir vinnustaði.
Starfsafl hvetur fyrirtæki til að nýta sér þetta mikilvæga fræðsluefni og deila því með starfsfólki og stjórnendum. Myndbandið getur meðal annars verið góður grunnur að samtali um samskipti, ábyrgð og þá vinnustaðamenningu sem við viljum byggja upp og viðhalda.
Þá er vert að benda á það að fjöldi fræðsluaðila bíður upp á námskeið um einelti á vinnustað. Starfsafl styrkir slík námskeið um 90% af reikningi en hafa ber í huga að öll ráðgjöf, ef hluti af kostnaði, er ekki styrkt.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Myndin með fréttinni er fengin hér