Þegar reynsla fær vægi og hæfni verður sýnileg

Mikilvægi þess að gera þekkingu og færni fólks sýnilega og veita henni formlega viðurkenningu var í brennidepli á vel sóttum ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í vikunni. Yfirskrift fundarins var „Þegar reynsla fær vægi og hæfni verður sýnileg“ og var megináherslan á raunfærnimat og mikilvægi þess að viðurkenna og staðfesta þá þekkingu og færni sem fólk hefur aflað sér, óháð því hvar eða hvernig hennar hefur verið aflað.

Færni þarf að vera sýnileg og viðurkennd

Mikil þekking og reynsla verður til á vinnumarkaði án þess að hún hljóti formlega viðurkenningu. Starfsfólk byggir upp verðmæta hæfni í daglegum störfum, með reynslu, þjálfun og fjölbreyttum verkefnum. Raunfærnimat er ein leið til að gera þessa hæfni sýnilega og staðfesta hana með formlegum hætti.

Með raunfærnimati er hægt að meta þekkingu og færni einstaklinga út frá skilgreindum hæfniviðmiðum, hvort sem markmiðið er að stytta nám eða staðfesta hæfni til tiltekinna starfa. Þar eru tvær leiðir mögulegar, með raunfærnimati á móti námsskrá eða á móti viðmiðum atvinnulífsins.

Formleg staðfesting á hæfni, hvort sem hún fæst með raunfærnimati, fagbréfi eða viðurkenndum námslokum, hefur gildi bæði fyrir einstaklinginn og atvinnulífið. Hún gerir þekkingu sýnilega, styrkir stöðu fólks á vinnumarkaði og skapar skýrari forsendur fyrir áframhaldandi starfsþróun.

Fjárfestum í þeirri hæfni sem framtíðin kallar á

Fyrir fyrirtæki er ekki síður mikilvægt að hafa yfirsýn yfir þá hæfni sem þegar er til staðar innan vinnustaðarins. Slík þekking er forsenda þess að hægt sé að greina hvaða færni þarf að efla og beina fjárfestingu í fræðslu og þjálfun þangað sem hennar er mest þörf.

Á tímum tæknibreytinga og síbreytilegra krafna á vinnumarkaði verður sífellt mikilvægara að fyrirtæki horfi til þess mannauðs sem þau þegar búa yfir. Í stað þess að leita ávallt út fyrir fyrirtækið eftir nýrri hæfni felast oft mikil tækifæri í því að byggja markvisst ofan á þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar í fyrirtækinu. Fyrsta skrefið er að vita hvar við stöndum. Það næsta er að byggja upp þá hæfni sem þarf til að mæta verkefnum morgundagsins.

Fyrsta skrefið er að vita hvar við stöndum. Það næsta er að byggja upp þá hæfni sem þarf til að mæta verkefnum morgundagsins.

Skýrari umgjörð um einstaklingsstyrki

Þessi umræða fellur vel að þeim breytingum sem gerðar voru á reglum Starfsafls um einstaklingsstyrki 1. júní síðastliðinn. Með breytingunum var meðal annars lögð aukin áhersla á starfsmenntun hjá viðurkenndum fræðsluaðilum og skýrari umgjörð um styrkhæfa fræðslu. Að baki liggur sú sýn að fræðsla eigi að skila raunverulegum ávinningi fyrir einstaklinginn og atvinnulífið. Þar skiptir máli að sú þekking og færni sem fólk aflar sér sé gagnleg, nýtist til starfsþróunar og geti, þar sem við á, leitt til formlegrar viðurkenningar á hæfni eða staðfestra námsloka.

Fræðsla er ekki markmið í sjálfu sér heldur leið til að efla hæfni fólks, auka tækifæri þess og styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja.

Hér má sjá upptöku frá fundinum 

Hér má nálgast frekari upplýsingar um raunfærnimat 

Skjáskot af glæru frá ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Um Starfsafl:

Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma.  Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.  

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér