Nú þegar aðeins nokkrar vikur eru eftir af árinu viljum við hvetja fyrirtæki, sem sannarlega ætla sér að sækja um styrk til sjóðsins innan ársins, til að skila umsóknum tímanlega.
Síðustu vikur ársins eru jafnan annasamur tími hjá Starfsafli og því viljum við biðja fyrirtæki um að sýna því skilning og senda umsóknir inn tímanlega, því fyrr, því betra.
Með því að dreifa umsóknum jafnar yfir árið má draga úr álagi í árslok og stuðla að því að Starfsafl geti áfram veitt þá góðu þjónustu sem sjóðurinn leggur áherslu á.
Þurfa öll fyrirtæki að skila umsóknum fyrir áramót?
Nei, alls ekki. Það eru fyrst og fremst stærstu fyrirtækin, innan við 10% fyrirtækja sem sækja um til sjóðsins, sem fullnýta sinn rétt og þurfa því að huga sérstaklega að skilum innan ársins.
Fyrirtæki geta sótt um styrki vegna fræðslu sem hefur farið fram svo lengi sem reikningurinn er ekki eldri en 12 mánaða. Því er almennt engin ástæða til að flýta umsóknum eingöngu vegna áramóta. Sem dæmi má nefna að hægt er að sækja um vegna reiknings sem er með eindaga 12. júní 2026 fyrir 12. júní 2027. 12 mánaða reglan er það sem gildir, ekki almanaksárið.
Fyrirtæki geta sótt um styrki vegna fræðslu sem hefur farið fram svo lengi sem reikningurinn er ekki eldri en 12 mánaða. Því er almennt engin ástæða til að flýta umsóknum eingöngu vegna áramóta. Sem dæmi má nefna að hægt er að sækja um vegna reiknings sem er með eindaga 12. júní 2026 fyrir 12. júní 2027. 12 mánaða reglan er það sem gildir, ekki almanaksárið.
Við mælum ávallt með því að fyrirtæki sæki um styrki jafnt og þétt yfir árið. Það stuðlar að betri yfirsýn yfir nýtingu styrkja og einfaldar fjárhagslega eftirfylgni.
Hvað þarf að hafa í huga við umsókn?
Til að umsókn teljist fullnægjandi þurfa umbeðin gögn að fylgja með, sjá yfirlitsmynd hér til hliðar og reglur hér
Athugið að umsókn er hafnað ef eitthvað af gögnum vantar.
Hverjir eiga rétt á styrk?
Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld vegna starfsfólks til Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði eða Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis geta sótt um styrki hjá Starfsafli.
Hámarksstyrkur til fyrirtækis er 4 milljónir króna á almanaksári. sjá reglur á www.starsfafl.is
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér