Við sumri tekur haustið

Síðasti  mánuður sumarsins er á enda runninn og haustið tekið við. Allir reikningar vegna þeirrar fræðslu sem fram fór fyrir sumarstarfsfólk ættu að vera komnir  í hús og ekki seinna vænna en að sækja um styrk vegna þeirrar fræðslu sem er löngu lokið, áður en haustið tekur völdin með þeim önnum sem því fylgir. 

Með því að sækja reglulega um styrki tryggja fyrirtæki að styrkir vegna fyrri fræðslu skili sér tímanlega og að fjármagnið nýtist til að standa straum af þeirri fræðslu sem fram undan er. Það er einfaldlega gott verklag og skynsamleg fjármálastjórnun.

Með því að sækja reglulega um styrki tryggja fyrirtæki að styrkir vegna fyrri fræðslu skili sér tímanlega og að fjármagnið nýtist til að standa straum af þeirri fræðslu sem fram undan er. Það er einfaldlega gott verklag og skynsamleg fjármálastjórnun.

Regluleg skil á umsóknum hafa líka þann kost að dreifa álaginu á afgreiðslu sjóðsins. Á hverju ári berast Starfsafli hundruð umsókna frá fyrirtækjum og reynslan sýnir að að minnsta kosti fjórðungur þeirra berst á síðustu sex vikunum fyrir árlegan skilafrest í desember. Það skapar óþarfa álag og getur lengt afgreiðslutíma umsókna. Við hvetjum því fyrirtæki til að senda umsóknir inn jafnt og þétt yfir árið í stað þess að bíða fram á síðustu stundu.

Styrkir í ágústmánuði til fyrirtækja og einstaklinga

Greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja og einstaklinga var 36.2 miljónir króna. 

Styrkir til fyrirtækja 

Ágúst var  heldur rólegur hjá Starfsafli hvað afgreiðslu umsókna snerti þar sem sjóðnum bárust einungis 22 umsóknir frá 11 fyrirtækjum. Þremur umsóknum var hafnað.  Greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja var rétt undir 5 milljónum króna.  

Námskeiðin á bak við umsóknirnar voru sem hér segir:

Áhættustjórnun
Endurmenntun atv.
Fiskvinnslunámskeið
Íslenska
Leiðtogafærni
Meirapróf
Öryggismál
Skyndihjálp
Stafrænt fræðsluumhverfi
Vinnustaðaskóli Akademías

Styrkir til einstaklinga 

Efling kr. 24.513.110,-

VSFK kr. 4751781,-

Hlíf kr. 2.406.870,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér