Fræðsla og starfsþróun mannauðs mikilvægasta fjárfestingin

Þegar hægir á í efnahagslífinu er eðlilegt að allir kostnaðarliðir séu tekin til skoðunar og seglin dregin saman þar sem það er mögulegt.  Fræðsla og starfsþróun mannauðs geta þá verið meðal þess  sem freistandi er að skera niður, því miður, enda margir sem líta svo á að mannauðstengdir þættir séu kostnaður en ekki fjárfesting. 

Ný bresk rannsókn CIPD vekur hins vegar athygli á mikilvægi þess að nýta tímann til að byggja upp hæfni fólksins sem þegar starfar hjá fyrirtækinu.

Rannsóknin Resourcing and Talent Planning Report 2026 byggir á svörum rúmlega 1.000 sérfræðinga í mannauðsmálum hjá breskum fyrirtækjum og stofnunum. Þar kemur fram að 48% vinnuveitenda hafa aukið áherslu á að þróa hæfni starfsfólks innan fyrirtækisins á síðasta ári. Á sama tíma segja 52% að samkeppni um vel hæft starfsfólk hafi aukist og 44% að erfiðara sé að halda í hæft fólk.

Þetta gerist þrátt fyrir að hægt hafi á ráðningum. Fyrirtæki virðast því í auknum mæli horfa inn á við og byggja upp þá hæfni sem þau þurfa í stað þess að treysta á að geta ráðið hana inn.

Fyrirtæki virðast því í auknum mæli horfa inn á við og byggja upp þá hæfni sem þau þurfa í stað þess að treysta á að geta ráðið hana inn.

Þetta er umhugsunarvert og ætti að vera til eftirbreytni fyrir íslensk fyrirtæki. Það kostar að missa reynt starfsfólk. Með því hverfur þekking og reynsla og ef ráða þarf nýtt fólk síðar bætist við kostnaður og tími við ráðningar, aðlögun og þjálfun. 

Hér á landi hafa fyrirtæki aðgang að  starfsmenntasjóðum sem taka þátt í kostnaði fyrirtækja við fræðslu og starfsþróun mannauðs. Hjá Starfsafli geta fyrirtæki til dæmis fengið allt að 90% af kostnaði vegna starfstengdrar fræðslu endurgreiddan. Það ætti að gera ákvörðunina um að fjárfesta í hæfni starfsfólks enn auðveldari.

Þegar kólnar í hagkerfinu þarf því ekki að draga saman seglin í fræðslumálum. Kannski er einmitt þá ástæða til að skoða betur hvaða hæfni fyrirtækið þarf, hvað það hefur þegar innan sinna raða og hvar hægt er að styrkja mannauðinn til að takast á við ný eða breytt verkefni.

Þegar kólnar í hagkerfinu þarf því ekki að draga saman seglin í fræðslumálum. Kannski er einmitt þá ástæða til að skoða betur hvaða hæfni fyrirtækið þarf, hvað það hefur þegar innan sinna raða og hvar hægt er að styrkja fólk til að takast á við ný eða breytt verkefni.

Fræðsla og starfsþróun mannauðs eru aldrei kostnaður.  Það sem er kostnaður er að missa þekkingu og reynslu og þurfa síðar að byggja hana upp að nýju.

Það er fjárfesta í mannauð fyrirtækis er mögulega mikilvægasta fjárfesting hvers fyrirtækis, ekki sofna á verðinum. 

Um Starfsafl:

Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma.  Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.  

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér