Nýtt stafrænt verkfæri til að greina fræðsluþarfir starfsfólks

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur opnað nýtt stafrænt verkfæri sem auðveldar fyrirtækjum að greina fræðslu og þjálfunarþarfir starfsfólks.  Á næstu vikum kemur  til viðbótar einfalt sniðmát fyrir uppsetningu á fræðsluáætlun. 

Starfsafl tók þátt í að styrkja þróun verkfærisins ásamt öðrum starfsmenntasjóðum og öllum er velkomið að nota verkfærið, sér að kostnaðarlausu. 

Markviss fræðsla byrjar á því að þekkja þörfina

Til þess að fjárfesting í fræðslu skili árangri er mikilvægt að fyrirtæki hafi góða mynd af því hvar þörfin liggur. Greining fræðsluþarfa hjálpar stjórnendum að beina tíma og fjármunum þangað sem þeirra er raunverulega þörf og tengja fræðslu betur við störf, starfsfólk og markmið fyrirtækisins.

Á stafræna vinnusvæðinu eru tilbúnar fræðslukannanir fyrir ólík starfssvið, auk starfsánægjukönnunar. Kannanirnar eru bæði á íslensku og ensku og ná meðal annars til verklags og samstarfs, þjónustu og samskipta, fagþekkingar, öryggis og stafrænnar hæfni. Fyrirtæki geta notað tilbúin sniðmát eða aðlagað spurningar að eigin starfsemi.

Þótt verkfærið hafi verið þróað undir hatti Hæfniseturs ferðaþjónustunnar og taki upphaflega mið af þörfum þeirrar atvinnugreinar er það alls ekki bundið við ferðaþjónustuna. Einfalt er fyrir fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum að nýta uppbyggingu verkfærisins og aðlaga kannanir og spurningar að eigin starfsemi, störfum og hæfnikröfum. Verkfærið getur því nýst fyrirtækjum þvert á atvinnugreinar sem vilja vinna markvisst að greiningu fræðsluþarfa og hæfniþróun starfsfólks.

Einfalt er fyrir fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum að nýta uppbyggingu verkfærisins og aðlaga kannanir og spurningar að eigin starfsemi, störfum og hæfnikröfum.

Nýsköpun og þróun í þágu atvinnulífsins

Starfsafl veitir nýsköpunar og þróunarstyrki til verkefna sem stuðla að þróun fræðslu og starfsmenntunar. Styrkirnir eru öllum opnir, en forsenda styrkveitingar er að verkefnið og afurðir þess geti nýst félagsfólki Starfsafls.  Undir flipanum styrkir til fyrirtækja má lesa nánar um nýsköpunar- og þróunarstyrkir, sjá reglu nr. 5. 

Þróun fræðslukannananna er gott dæmi um verkefni af þessu tagi. Með því að styðja við þróun hagnýtra verkfæra sem fyrirtæki geta nýtt beint í sinni starfsemi vill Starfsafl stuðla að markvissari fræðslu, aukinni hæfni og betri nýtingu þeirra fjármuna sem varið er til starfsþróunar.

Skoða fræðslukannanir á vef Hæfniseturs ferðaþjónustunnar

Um Starfsafl:

Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma.  Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.  

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér