Um næstu áramót, 1. janúar 2027, taka gildi nýjar reglur um styrki vegna tungumálanáms, en frá þeim tíma verða aðeins veittir styrkir vegna tungumálanáms sem fram fer í framhalds- eða háskólum og hjá viðurkenndum fræðsluaðilum.
√ Eftir 1. janúar verður eingöngu hægt að sækja um styrk vegna tungumálanáms ef námið fer fram í framhalds – eða háskóla eða hjá fræðsluaðila sem er á þessum lista hér,
Markmið breytingarinnar er að einfalda og samræma reglur sjóðsins og tryggja að sömu grunnviðmið gildi um tungumálanám og aðra styrkhæfa starfsmenntun.
Samhliða þessum breytingum verður listi yfir fræðsluaðila sem starfsmenntasjóðirnir hafa samþykkt sérstaklega, sjá hér, í íslensku- og öðru tungumálanámi, lagður niður. Núverandi listi gildir til áramóta og ekki verður bætt við nýjum fræðsluaðilum fram að þeim tíma.
Umsóknir sem berast vegna náms sem tekið er á árinu 2026, með reikningum á gjalddaga innan ársins, verða afgreiddar samkvæmt reglum en umsóknum með reikningum sem gefnir eru fram í tímann, vegna náms á árinu 2027, verður hafnað án undantekninga.
Hvað þýðir þetta fyrir félagsfólk ?
Í breytingunni felst að allt tungumálanám sem tekið er í framhalds- og háskólum, hjá símenntunarmiðstöðvum og öðrum viðurkenndum fræðsluaðilum verður áfram styrkt samkvæmt reglum sjóðsins, með sama hætti og önnur styrkhæf starfsmenntun. Hér má sjá lista yfir viðurkennda fræðsluaðila
Frá og með 1. janúar 2027 verður ekki veittur styrkur vegna íslensku eða annars tungumálanáms hjá fræðsluaðilum sem ekki hafa formlega viðurkenningu stjórnvalda, svo sem sjálfstætt starfandi fræðsluaðilum eða vegna áskriftar að tungumálaöppum.
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér
