Framkomuþjálfun, velferð fiska, húmor og hamingja meðal styrkja í júlí

Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga, samantekt júlí 2026 

Það er oftar en ekki mikill fjöldi umsókna sem sjóðnum berst í júlí þar sem fjöldi fyrirtækja nýtir sumarmánuðina til að taka saman gögn og senda inn umsóknir vegna náms og  námskeiða sem starfsfólk hefur sótt það sem af er ári.  

Þá eru  fyrirtæki sem senda inn umsóknir vegna námskeiða sem sumarstarfsfólk sækir en það er að aldrei of oft undirstrikað mikilvægi þess að fjárfesta í því starfsfólki sem kemur inn á vinnumarkaðinn rétt yfir sumarmánuðina.  Oftar en ekki er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og því mikilvægt að það geti bætt við sig reynslu og hæfni og jafnvel öðlast réttindi sem það getur nýtt sér í framtíðarstörfum.  

Þá eru ótalin önnur námskeið sem fyrirtæki greiða fyrir sitt sumarstarfsfólk og eru góður grunnur fyrir öll framtíðarstörf,  Að sjálfsögðu er síðan hægt að sækja um styrk sem felur í sér endurgreiðslu á kostnaði til Starfsafls og nýta þannig sinn rétt hjá sjóðnum, sem myndast sjálfkrafa um leið og launatengd gjöld hafa verið greidd.  Mikilvægt er að hafa í huga að reikningur sé á kennitölu fyrirtækis, ekki félagsmanns, og þá þarf staðfesting á greiðslu sömuleiðis að vera á kennitölu fyrirtækis.  Hvorutveggja er ófrávíkjanleg grundvallarregla. 

Mikilvægt er að hafa í huga að reikningur sé á kennitölu fyrirtækis, ekki félagsmanns, og þá þarf staðfesting á greiðslu sömuleiðis að vera á kennitölu fyrirtækis.  Hvorutveggja er ófrávíkjanleg grundvallarregla. 

Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga

Samanlögð styrkfjárhæð  til einstaklinga og fyrirtækja í júlí var 41.5 milljónir króna sem er 4,7 % hærri fjárhæð en var greidd í styrki á sama tíma og fyrir ári síðan.  Sé litið til þess tíma sem liðinn er af árinu, það er janúar til og með júlí,  þá er um 25% aukningu að ræða á milli ára í heildarfjárhæð greiddra einstaklings- og fyrirtækjastyrkja.

Styrkir til fyrirtækja

Í júlí bárust 43 umsóknir frá 16 fyrirtækjum, þar af var þremur umsóknum hafnað.  Nokkrar ástæður geta legið að baki því að umsókn sé hafnað, til að mynda getur umsókn verið vegna ferðakostnaðar, reikningur getur verið á nafni félagsmanns en ekki fyrirtækis, reikningur er eldri en 12 mánaða eða umsókn er vegna vinnustofu eða stefnumótunar, en ekkert af fyrrgreindu er styrkt.  

Umsóknir voru vegna eftirtalinna námskeiða:

Betri svefn
Eldvarnir
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Fallvarnarskólinn
Fiskvelferð
Framkomuþjálfun
Frumnámskeið
Gæðastjórnun
Grunnnám vinnuvéla
Húmor og hamingja á vinnustað
Íslenska
Íslenska 2
Íslenska á vinnustað
Meirapróf
Nám fyrir nýja stjórnendur
Rótargreining
Samfélagsleg sjálfbærni
Sigrum streituna
Skyndihjálp
SSG Öryggisnámskeið
Stafrænt fræðsluefni
Stafrænt fræðsluumhverfi
Þjónustuþjálfun
Vinnustaðaskóli Akademías

Styrkfjárhæðir eftir félagsaðild; 

Efling kr. 26.402.439,-

VSFK kr.  7.519.146,-

Hlíf kr. 2.450.397,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér