32 milljónir greiddar í styrki til fyrirtækja fyrstu 6 mánuði ársins

Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga, samantekt júní 2026 

Tíminn er sannarlega fljótur að líða. Nýju ári hefur rétt verið fagnað þegar árið er hálfnað og  vikur og mánuðir hafa þotið hjá og tímabært er að líta til baka og skoða tölur, fjölda umsókna og fjárhæðir sem veittar hafa verið í styrki. 

Innan margra fyrirækja blómstrar menning sem hvetur til starfstengdrar fræðslu og þar er fyrir verklag sem styður við fræðslumenningu og sótt er jöfnum höndum í starfsmenntasjóði.  Þá er fjöldi fyrirtækja  að þreifa sig áfram, kynna sér þá möguleika sem eru í boði og leggja grunninn að menningu sem hvetur til starfstengdar fræðslu.  Skrefin eru nokkur en allt er mögulegt ef viljinn er fyrir hendi og framtíðarsýnin er skýr.

Innan margra fyrirækja blómstrar menning sem hvetur til starfstengdrar fræðslu og þar er fyrir verklag sem styður við fræðslumenningu og sótt er jöfnum höndum í starfsmenntasjóði. 

Það sem af er ári hafa verið greiddar 32 milljónir króna í styrki til fyrirtækja vegna starfstengdrar fræðslu sem náði til á þriðja þúsund félagsmanna.  Þar er hverri krónu vel varið og fyrirtæki sem fjárfestir í sínu starfsfólki með því að bjóða upp á starfstengda fræðslu og hvetja til starfsþróunar, styrkir sína innviði og uppsker ríkulega.

Þar er hverri krónu vel varið og fyrirtæki sem fjárfestir í sínu starfsfólki með því að bjóða upp á starfstengda fræðslu og hvetja til starfsþróunar, styrkir sína innviði og uppsker ríkulega.

Styrkir til fyrirtækja

Í júní bárust 45 umsóknir frá 25 fyrirtækjum sem er talsvert meira en fyrri mánuði.   Styrkfjárhæð til fyrirtækja var 8,4  milljónir króna og  þar að baki voru  563 einstaklingar.  

Töluvert var um umsóknir vegna vinnuvélanáms og er skýringin væntanlega sú að um sumarstarfsfólk er að ræða. Oft vantar upp á reynslu og hæfni og þá er ánægjulegt að sjá og segja frá því að fjöldi fyrirtækja sér hag í þvi að greiða fyrir sitt sumarstarfsfólk allskonar vinnuvélanám sem veitir réttindi sem þeir einstaklingar taka með sér áfram og geta nýtt í framtíðarstörfum.

Þá eru ótalin önnur námskeið sem fyrirtæki bjóða upp á og eru góður grunnur fyrir öll framtíðarstörf, svo sem námskeið sem taka til vinnuverndar, gæðastjórnunar og samskipta, svo fátt eitt sé talið. Að sjálfsögðu er síðan hægt að sækja um styrk sem felur í sér endurgreiðslu á kostnaði til Starfsafls og nýta þannig sinn rétt hjá sjóðnum, sem myndast sjálfkrafa um leið og launatengd gjöld hafa verið greidd. 

Athugið að viðkomandi starfsmaður þarf að vera komin á launaskrá þegar námið er sótt, námið þarf að vera starfstengt og hægt er að sækja um þegar skilagreinar hafa verið sendar inn og iðgjöld greidd.

Styrkir voru veittir vegna eftirfarandi:

Íslenska
AI vinnustofa
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Erfiðir kúnnar og áreiti
Fallvarnir
Fiskeldistækni
Fjármál
Flugverndarnámskeið
Frumnámskeið
Fræðsla um sólmyrkvann
Fyrirlestur um heilsu
Íslenska
Leiðtoganám
Lyftarapróf
Meirapróf
Öryggisnámskeið
Samskipti
Sjálfsefling
Skyndihjálp
Þjónustuþjálfun
Verkstjóranámskeið
Vinna í hæð og lokuðu rými
Vinnustaðaskóli Akademía
Vinnuvélaréttindi

Styrkir til einstaklinga.

Styrkir til einstaklinga í krónum talið voru sem hér segir:

Efling kr. 17.666.501,-

VSFK kr. 14.911.425

Hlíf kr.2.997,392,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér