Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga, samantekt maí 2026
Víða er fræðsla og starfsþróun orðin eðlilegur hluti af daglegum rekstri fyrirtækja. Þar er skýr sýn á hvaða hæfni þarf að byggja upp, fræðslan tengd markmiðum fyrirtækisins og starfsfólk þekkir þau tækifæri sem því standa til boða. Í þeim fyrirtækjum sem lengst eru komin er jafnframt fylgst með þátttöku, kostnaði og árangri og fræðsla þannig meðhöndluð eins og hver önnur fjárfesting í rekstrinum.
En staðan er ekki alls staðar þannig. Sérstaklega getur verið áskorun fyrir minni og meðalstór fyrirtæki að halda utan um fræðslu og starfsþróun með markvissum hætti, enda er þar oft enginn sem sinnir fræðslu eða mannauðsmálum sérstaklega. Það þarf þó ekki að þýða að tækifærin séu færri.
Starfsmenntasjóðir eru hluti af því baklandi sem fyrirtæki geta nýtt sér til að styðja við fræðslu starfsfólks og draga úr kostnaði við hana. Starfsafl hvetur fyrirtæki til að kynna sér þær leiðir sem standa til boða og skoða hvernig styrkir sjóðsins geta nýst við að byggja upp þekkingu og færni innan fyrirtækisins.
Starfsmenntasjóðir eru hluti af því baklandi sem fyrirtæki geta nýtt sér til að styðja við fræðslu starfsfólks og draga úr kostnaði við hana. Starfsafl hvetur fyrirtæki til að kynna sér þær leiðir sem standa til boða og skoða hvernig styrkir sjóðsins geta nýst við að byggja upp þekkingu og færni innan fyrirtækisins.
Að því sögðu voru styrkir til fyrirtækja og einstaklinga samanlagt í maímánuði rétt undir 55 milljónum króna, þar af voru styrkir til fyrirtækja 3.2 milljónir.
Styrkir til fyrirtækja
Fimmti mánuður ársins var einstaklinga rólegur sé litið til umsókna frá fyrirtækjum en þann mánuðinn bárust einungis 15 umsóknir frá 10 fyrirtækjum. Heildarfjárhæð greiddra styrkja var 3.2 miljónir króna. Einni umsókn var hafnað þar sem reikningur var eldri en 12 mánaða.
Alls náðu fyrirtækjastyrkir mánaðarins til 110 einstaklinga sem sóttu allskyns nám, samanber listann hér fyrir neðan:
Stjórnendaþjálfun
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Aukin ökuréttindi
Gæðastjórnun (meðferð matvæla)
Liðsheild
Meirapróf
Samskipti
Samskipti millli ólíkra kynslóða
Skyndihjálp
Stafrænt fræðsluumhverfi
UT Messan
Vinnuvélanámskeið
Styrkir til einstaklinga
Styrkir til einstaklinga í krónum talið voru sem hér segir:-
Efling 39.964.102,-
VSFK kr. 11.740.440,-
Hlíf kr 3.704.633
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 / 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér
