215 milljónir króna í styrki á fyrsta ársfjórðungi

Styrkir til fyrirtækja og einstaklinga, samantekt apríl 2026 

Á fyrsta ársfjórðungi hafa verið greiddar 215 milljónir króna í styrki til einstaklinga og fyrirtækja auk sértækra styrkja. Það er 115% á fimm ára tímabili, sé litið aftur til ársins 2021.

Aukningin varpar sannarlega ljósi á þá nýtingu á því fjármagni sem Starfsafl veitir til fræðslu og starfsþróunar og ekki síður mikilvægi sjóðsins á vinnumarkaði.  Á bak við fjárhæðirnar eru einstaklingar sem efla þekkingu sína og færni og fyrirtæki sem fjárfesta í starfsfólki sínu og byggja þannig undir hæfni til framtíðar.

Aukningin varpar sannarlega ljósi á þá nýtingu á því fjármagni sem Starfsafl veitir til fræðslu og starfsþróunar og ekki síður mikilvægi sjóðsins á vinnumarkaði. 

Hlutverk Starfsafls er að styðja við þessa þróun með því að veita fjármagn til fræðslu og starfsþróunar. Þegar styrkir sjóðsins eru nýttir með markvissum hætti skilar fjármagnið sér í aukinni þekkingu og færni á vinnumarkaði og styrkir um leið bæði einstaklinga og fyrirtæki.

Hlutverk Starfsafls er að styðja við þessa þróun með því að veita fjármagn til fræðslu og starfsþróunar. Þegar styrkir sjóðsins eru nýttir með markvissum hætti skilar fjármagnið sér í aukinni þekkingu og færni á vinnumarkaði og styrkir um leið bæði einstaklinga og fyrirtæki.

Ef við lítum til aprílmánaðar eingöngu þá var heildarfjárhæð greiddra styrkja þann mánuðinn 47,8  milljónir króna og þar af 6.5 milljónir í styrki til fyrirtækja.

Styrkir til fyrirtækja

27 umsóknir frá 15 fyrirtækjum bárust sjóðnum í mánuðinum og á bak við þá tölu 1128 félagsmenn. Talan er óvenju há og skýrist af því af því að tvær umsóknir voru vegna stafræns fræðsluumhverfis og svo námskeiðum eða fræðslusöfnum sem eru stafræn.  Í slíkum tilvikum er aðgangur  keyptur fyrir allt starfsfólk en staðfestir ekki endilega notkun eða þátttöku, en að sjálfsögðu er gert ráð fyrir því og þá að allir fái tækifæri og rými innan vinnutímans til að nýta þá fræðslu sem er í boði. 

Fræðsla sem var styrkt er því sem hér segir: 

Stafrænt fræðsluumhverfi
Stafrænt fræðslusafn
Skyndihjálp og eldvarnir
Innri úttektir stjórnkerfa
Gæðastjórnun
Íslenska
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Liðsheild
Stjórnendaþjálfun
Tímastjórnun
Brunavarnir
Skyndihjálp
Að stjórna jafningjum
Stjórnun undir álagi
Ógnandi hegðun
Vinnuvélapróf
Gervigreindarnámskeið

Styrkir til einstaklinga.

Styrkir til einstaklinga í krónum talið voru sem hér segir:

Efling kr.31.392.950,-

VSFK kr. 6.984.881,-

Hlíf kr. 2.920.822,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér