Eitt af meginmarkmiðum Starfsafls er að styðja fyrirtæki og starfsfólk þeirra í því að efla hæfni, öryggi og tækifæri á vinnumarkaði, óháð lífaldri, starfsaldri eða ráðningartíma. Það er því mikilvægt að fyrirtæki geri allt starfsfólk, þar með talið sumarstarfsfólk, að virkum þátttakendum í fræðslu sem getur leitt til áunninna réttinda og annarrar viðurkenndrar hæfni á vinnumarkaði.
Eitt af meginmarkmiðum Starfsafls er að styðja fyrirtæki og starfsfólk þeirra í því að efla hæfni, öryggi og tækifæri á vinnumarkaði – óháð lífaldri, starfsaldri eða ráðningartíma. Það er því mikilvægt að fyrirtæki geri allt starfsfólk, þar með talið sumarstarfsfólk, að virkum þátttakendum í fræðslu sem getur leitt til áunninna réttinda og annarrar viðurkenndrar hæfni á vinnumarkaði.
Þegar verslunarmannahelginni er lokið og sumarið senn á enda, þá er tilvalið að senda inn umsóknir vegna þeirra fræðslu sem fram fór yfir sumartímann og mögulega þeirrar fræðslu sem fram fór fyrir þann tíma, ef það hefur ekki verið gert nú þegar.
Haustið nálgast hratt og hvetur Starfsafl fyrirtæki til að nýta þau úrræði sem standa til boða. Markviss fræðsla og efling mannauðs skila sér margfalt til baka í vexti, vellíðan og bættri samkeppnisstöðu.
Haustið nálgast hratt og hvetur Starfsafl fyrirtæki til að nýta þau úrræði sem standa til boða. Markviss fræðsla og efling mannauðs skila sér margfalt til baka í vexti, vellíðan og bættri samkeppnisstöðu.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Myndin með fréttinni er fengin hér