
Hvernig tryggjum við að íslenskur vinnumarkaður búi yfir þeirri hæfni sem þarf til að mæta síbreytilegum kröfum framtíðarinnar? Þetta er ein af stærstu áskorunum atvinnulífsins og um leið eitt mikilvægasta verkefni þeirra sem hafa með fræðslu, starfsþróun og mannauðsmál að gera.
Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins og stjórnarkona í stjórn Starfsafls hefur birt þrjár greinar á vef Samtaka atvinnulífsins þar sem hún fjallar um lykilþætti sem munu hafa sífellt meira vægi í uppbyggingu hæfni á íslenskum vinnumarkaði. Greinarnar mynda heildstæða umfjöllun um hvernig einstaklingar, fyrirtæki, menntakerfið og aðilar vinnumarkaðarins geta unnið saman að því að styrkja hæfni til framtíðar.
Greinarnar mynda heildstæða umfjöllun um hvernig einstaklingar, fyrirtæki, menntakerfið og aðilar vinnumarkaðarins geta unnið saman að því að styrkja hæfni til framtíðar.
Í fyrstu greininni er fjallað um örnám og þau tækifæri sem felast í stuttum og markvissum námsleiðum sem gera fólki kleift að bæta við sig þekkingu og hæfni samhliða starfi. Í annarri greininni er sjónum beint að færnispám og mikilvægi þess að greina með markvissum hætti hvaða hæfni íslenskt atvinnulíf mun þurfa á næstu árum. Þriðja greinin fjallar síðan um hæfnigreiningu starfa og hvernig skýrari sýn á hæfnikröfur getur stutt við ráðningar, starfsþróun, fræðslu og stefnumótun fyrirtækja.
Í þessum þremur greinum má finna sameiginlegan þráð þar sem lögð er áhersla á að hæfni verði sífellt mikilvægari samkeppnisþáttur fyrirtækja og lykill að sjálfbærum vexti einstaklinga, atvinnulífs og samfélags. Um leið undirstrika greinarnar mikilvægi þess að menntun og fræðsla þróist í takt við þarfir vinnumarkaðarins og að hæfni verði bæði sýnileg og viðurkennd.
Um leið undirstrika greinarnar mikilvægi þess að menntun og fræðsla þróist í takt við þarfir vinnumarkaðarins og að hæfni verði bæði sýnileg og viðurkennd.
Eitt af meginhlutverkum sjóðsins er að styðja við uppbyggingu hæfni á íslenskum vinnumarkaði og auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að bregðast við þeim breytingum sem fram undan eru og þessar greinar ríma vel við þær áherslur.
Við hvetjum áhugasama til að lesa greinarnar í heild á vef Samtaka atvinnulífsins:
- Lyklar að hæfni framtíðarinnar – Örnám
- Lyklar að hæfni framtíðarinnar – Færnispár
- Lyklar að hæfni framtíðarinnar – Hæfnigreining starfa
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Mynd: SillaPáls MirrorRose.