Þrír meginflokkar starfstengdrar fræðslu

Fyrir fyrirtæki sem vilja taka fræðsluna föstum tökum og eða vera markvissari í sinni nálgun og fullvissa sig um að nauðsynleg fræðsla fái það vægi sem hún þarf, þá er gott að hafa eftirfarandi til viðmiðunar:

Fræðsla sem fyrirtæki fjárfesta í og er styrkhæf er hægt að skipta í þrjá meginflokka til einföldunar en þó með einhverri skörun sín á milli:

1. Rekstur og hæfi

Undir rekstrarhæfi fellur fræðsla sem tryggir laga- og restrarlegt hæfi, annarsvegar tengt öllum starfsgreinum, svo sem vinnuvernd, skyndihjálp, öryggis-og brunarvarnir og svo tengt ákveðnum starfsgreinum, td; gæðastjórnun, endurmenntun atvinnubílstjóra og flugvernd. 

2. Sjálfsefling og samskipti

Undir sjálfseflingu og samskipti fellur fræðsla sem tekur til hvorutveggja sem og einelti á vinnustað,  leiðtogafærni, stjórnun,  fræðsla um inngildingu og menningarlæsi og tungumálanám 

3. Hæfni og þróun

Undir hæfni og þróun fellur fræðsla sem styður við þau störf sem sinnt er hverju sinni sem og framtíðarstörf, svo sem tölvulæsi, leiðtoga og stjórnunarnám, vinnu- og  meiraprófsréttindi og aðra sérhæfða og einstaklingsmiðaða fræðslu, þ.m.t. nám til starfsþróunar innan vinnustaðar sem utan, nám sem gefur viðurkenningu á færni eða aukin réttindi (nám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum). 

Leiðarstefið er, í upphafi skal endinn skoða.  Við hvetjum fyrirtæki til að skoða reksturinn heildstætt og greina raunverulegar fræðsluþarfir innan einstakra starfshópa, verkefna eða deilda og kortleggja sína vegferð.  

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma.  Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.