Árangur fyrirtækja ræðst sífellt meira af einu lykilatriði, fólkinu sem þar starfar. Tækni þróast hratt, verkefni verða flóknari og breytingar eru orðnar hluti af daglegum rekstri. Í slíku umhverfi dugar ekki lengur að horfa eingöngu til framleiðni eða ferla heldur þurfa fyrirtæki markvisst að styðja við starfsfólk sitt, efla samskipti og styrkja leiðtogahæfni innan vinnustaðarins.
143 fyrirtæki nýttu rétt sinn á árinu 2025 og sóttu um styrk vegna starfsmenntunar til sjóðsins.
Fyrirtæki sem taka starfsmenntun og starfsþróun mannauðs alvarlega eru betur í stakk búin til að takast á við breytingar, laða að sér hæft starfsfólk og tryggja að verkefnum morgundagsins verður mætt af þekkingu, færni og hæfni
Í nýrri ársskýrslu Starfsafls er hægt að skoða hvaða fyrirtæki fengu styrk til starfsmenntunnar árið 2025, sjá hér
Það er vert að benda á það að öll fyrirtæki á almennum markaði sem eru með starfsfólk í hlutaðeigandi stéttafélögum og í skilum með iðgjaldagreiðslur, eiga rétt hjá sjóðnum. Rétturinn myndast sjálfkrafa um leið og launatengd gjöld starfsmanns eru greidd og því er hægt að sækja um styrk vegna starfsmanns strax á fyrsta mánuði í starfi.
Er þitt fyrirtæki á listanum ?
Hik er sama og tap.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.