Þrjár suðurnesjakonur í forystu – umfjöllun í Víkurfréttum um starfsmenntasjóðina

Það er sannarlega athyglivert að þrjár konur af Suðurnesjum stýra þremur stærstu starfsmenntasjóðum almenna markaðarins, þar á meðal er framkvæmdastjóri Starfsafls. Í nýlegri umfjöllun Víkurfrétta er fjallað um þær  Lísbet Einarsdóttir frá Njarðvík, framkvæmdastjóra Starfsafls, Sólveig Ólöf Magnúsdóttir úr Garðinum, framkvæmdastjóra Landsmenntar og Selmu Kristjánsdóttir frá Keflavík, framkvæmdastjóra Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks. 

Í viðtalinu ræða þær meðal annars mikilvægi símenntunar, stuðning við fyrirtæki og starfsfólk á vinnumarkaði og hvernig fræðslusjóðir stuðla að aukinni hæfni og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Sameiginleg áhersla þeirra er að fræðsla sé ekki tilviljanakennd aðgerð heldur hluti af heildstæðri stefnu fyrirtækja og markvissri starfsþróun einstaklinga. Þannig verði hún raunverulegt afl til umbreytinga og aukinnar samkeppnishæfni. 

Sameiginleg áhersla þeirra er að fræðsla sé ekki tilviljanakennd aðgerð heldur hluti af heildstæðri stefnu fyrirtækja og markvissri starfsþróun einstaklinga. Þannig verði hún raunverulegt afl til umbreytinga og aukinnar samkeppnishæfni.

Þá hvetja þær öll fyrirtæki á almenna markaðnum til að kynna sér reglur sjóðanna og hvaða möguleikar eru fyrir hendi.  Það er nefnilega þannig að réttur stofnast með greiðslu launatengdra gjalda. Ef fyrirtæki er með starfsfólk í hlutaðeigandi stéttarfélögum þá á það rétt á allt að 4 milljónum króna í starfstengdan styrk á ári.  Gæti ekki verið einfaldara. 

Við hvetjum áhugasama til að lesa greinina í heild sinni á vef Víkurfrétta, sjá hér á bls. 28

Myndina tók Silla Páls á 25 ára afmlælisráðstefnu starfsmenntasjóða, sem fram fór haustið 2025. 

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected]  Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.