Það var afar ánægjulegt að sjá þann góða hóp sem mætti á vorfund Starfsafls á dögunum þar sem fólk úr atvinnulífi, mannauðs- og fræðsluumhverfi kom saman til að hlýða á fróðleg og hvetjandi erindi og efla tengslanetið.
Vorfundur Starfsafls hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir umræðu um fræðslu og starfsþróun mannauðs. Fundurinn er jafnframt kærkomið tækifæri til að hittast, miðla reynslu og skapa nýjar tengingar þvert á atvinnugreinar.
Dagskrá fundarins var bæði metnaðarfull og fjölbreytt og fyrirlesarar dagsins voru öll leiðandi á sínum sviðum. Erindi þeirra vöktu verðskuldaða athygli og sköpuðu líflegar umræður meðal fundargesta. Það er greinilegt að efnisatriði fundarsins brenna á mörgum enda breytingar í atvinnulífi hraðar og kröfur til starfsfólks og stjórnenda sífellt að þróast.
Eins og alltaf myndaðist góð stemming á fundinum en að að erindum loknum gafst fundargestum góður tími til að ræða saman, tengjast og deila hugmyndum og reynslu. Slík samtöl eru oft ekki síður mikilvæg en erindin sjálf og minna okkur á hversu dýrmætt það er að skapa vettvang fyrir fólk til að hittast og eiga innihaldsríkt samtal. Sú áhersla hefur einkennt vorfundi Starfsafls frá upphafi.
Starfsafl vill færa öllum fyrirlesurum, gestum og samstarfsaðilum kærar þakkir fyrir komuna og þátttökuna. Þá þökkum við sérstaklega ljósmyndaranum SilluPáls fyrir að fanga svo vel stemminguna sem ríkti.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá fundinum og stemningunni sem ríkti yfir deginum
Ljósmyndir Silla Páls
Sjá www.mirrorrose.com










































































